fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Segir eigendum Chelsea til syndanna og segir þá hundsa söguna

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Obi Mikel hefur gagnrýnt eigendur Chelsea harðlega vegna slaks gengis liðsins á tímabilinu og telur að félagið hafi misst tengslin við þá menningu sem byggð var upp á árum áður.

Mikel, sem lék lengi með Chelsea á tíma Roman Abramovich, segir núverandi eigendur, BlueCo, ekki nýta reynslu fyrrum leikmanna sem þekkja vel hvað þarf til að ná árangri hjá félaginu.

„Það virðist vera þannig að BlueCo vilji ekki hafa neina sem tengjast fortíð félagsins og hjálpuðu til við að byggja það upp. Það er rangt,“ sagði Mikel í Obi One hlaðvarpinu.

Chelsea hefur lagt áherslu á að kaupa unga leikmenn á löngum samningum undanfarin ár, en árangurinn hefur látið á sér standa og liðið er nú í baráttu um Evrópusæti, þrátt fyrir að hafa áður stefnt á sæti í Meistaradeildinni.

Mikel telur að félagið þurfi að fá inn fyrrum leikmenn til að miðla reynslu og menningu.

Hann nefndi sérstaklega John Terry, fyrrum fyrirliða félagsins, sem hann vill sjá í stærra hlutverki. Terry hefur þó staðfest að hann hafi ekki fengið tilboð um að ganga til liðs við þjálfarateymi bráðabirgðastjórans Calum McFarlane.

Terry hefur áður lýst yfir vonbrigðum með að hafa ekki verið valinn í starf hjá félaginu þrátt fyrir að hafa starfað með yngri liðum þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Í gær

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“

Hugarfarið hafi ekki virkað nógu gott – „Vanmat er eitur“
433Sport
Í gær

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur

Hefði áhyggjur af þessu sem KR-ingur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið

Guardiola með áhugaverð svör þegar hann var spurður út í tímabilið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Goðsögnin leggur skóna á hilluna