fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fréttir

Víetnömsk kona flutt úr landi í lögreglufylgd – Hafði búið og starfað hér í fimm ár

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 23. maí 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í vikunni var víetnömsk kona, sem búið hafði hér og starfað í um fimm ár, flutt úr landi í fylgd tveggja lögreglumanna. Ein af ástæðum brottvísunar konunnar var sú að henni tókst ekki að framvísa sannvottun á prófskírteini sínu sem lærður matreiðslumaður og féll atvinnuleyfi hennar hjá Vinnumálastofnun því úr gildi.

DV hefur fengið ábendingar þess efnis að yfirvöld hafi skorið upp herör gegn fölskum eða ófullnægjandi prófskírteinum í iðngreinum. DV fjallaði nokkuð um þetta vandamál í fyrra auk þess sem það kom við sögu í ítarlegri fréttaskýringu Kveiks um mansal í tengslum við rekstur snyrtistofa.

Sjá einnig: Segir fjölmarga Víetnama starfa á Íslandi á grundvelli falsaðra hæfnisskírteina – „Það þarf að vekja athygli á þessu ástandi“

Kunnugur aðili greindi DV í fyrra frá því að stór hluti innflytjenda frá Víetnam hér á landi hefðu fengið dvalar- og atvinnuleyfi með því að framvísa fölsuðum hæfnisskírteinum. Maðurinn sýndi DV stafla af ljósritum af hæfnisvottorðum sem hann segir skorta stimpil frá viðkomandi ráðuneyti í landinu, en það er augljósasta merkið um að skírteini séu fölsuð. Einnig sagði hann að dæmi væru um að slíkir stimplar séu falsaðir.

Íbúar utan Schengen-svæðisins geta fengið tímabundið atvinnuleyfi hér á landi vegna starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar. Skilyrði fyrir veitingu leyfisins er að starfið sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir krefjist þess að starfsmaðurinn búi yfir sérfræðiþekkingu, þ.e. hafi háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun í viðkomandi fagi, sem viðurkennd sé á Íslandi.

Fyrrnefndur heimildarmaður DV sagði að 200 manns frá Víetnam störfuðu hér ýmist sem matreiðslumeistarar eða snyrtifræðingar. Stór hluti af þessum hópi væru ekki með tilskilda menntun en hafi lagt fram fölsuð skilríki um menntun sína.

Í svari við fyrirspurn DV í fyrra staðfesti Vinnumálastofnun að ábendingar hefðu borist um fölsuð gögn til öflunar starfsréttinda og hafi slíkar ábendingar verið teknar til skoðunar í samstarfi við viðeigandi stofnanir, þ. á m. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.

Yfirvöld sýna tennurnar

Víetnamska konan sem flutt var úr landi fyrr í vikunni starfaði fyrsta árið hér á landi á veitingastaðnum Thai Viet við Smiðjuveg í Kópavogi en síðan á Sushi Social. Hún var á meðal átta manneskja frá Víetnam sem eigandi Thai Viet, félagið Velox ehf. flutti til landsins. Þegar Vinnumálstofnun varð þess vör að prófskírteinum hjá sumu af þessu fólki var ábótavant óskaði stofnunin eftir sannvottun á þeim. Sumum tókst ekki að afla staðfestingar hjá viðkomandi skólum um að þau hefðu lokið námi þar og öðlast starfsréttindi.

Þessar aðgerðir leiddu til þess að áðurnefnd kona fékk ekki endurnýjað atvinnuleyfi sitt hér. Þar með voru brostnar forsendur fyrir því að hún gæti fengið dvalarleyfi sitt, sem endurnýja þarf árlega, endurnýjað. Lögmaður hennar, Jónas Örn Jónasson, segir þó að fleira hafi komið til.

„Það er búið að flytja hana úr landi en ég er reyndar enn að vinna í málinu hennar. Þetta var á grundvelli þess [að hún hafði misst atvinnuleyfið -innsk. DV] en kannski líka á öðrum grundvelli. Ég kærði þetta til kærunefndar útlendingamála en úrskurðurinn var á þeim forsendum að hún hefið ekki skilað inn tilskildum gögnum, hún var ekki með gildan passa og eins var hún ekki skráð í þjóðskrá sem gift, en hún er gift manni hérna.“

Segir Jónas að upphaflega orsökin fyrir brottvísun konunnar liggi í þessu með atvinnuleyfið en hitt hafi síðan líka komið til. „Ég hef óskað eftir endurupptöku og svo er ég reyndar að sækja um dvalarleyfi fyrir hana aftur.“

Jóna segist vera með 7-8 önnur mál af svipuðu tagi og því ljóst að yfirvöld séu farin að sýna aukna hörku hvað varðar fölsuð eða ófullnægjandi prófskírteini.

„Ég er með nokkur mál fólks sem eru strand út af þessu diploma. Fólk sem hefur verið hérna í einhvern tíma, mismunandi langan, og þegar þau ætla að sækja um endurnýjun þá kemur höfnun frá Vinnumálstofnun út af þessu diploma.“

Hefur verið fyrirmyndarborgari

Að mati Jónasar skortir nokkuð upp á að stjórnvöld taki tillit til annarra sjónarmiða.

„Hún er búin að vera hér í fimm ár og er gift manni sem er með gilt dvalarleyfi. Hér hefur hún unnið og lagt til samfélagsins þrátt fyrir þetta, að þetta diploma sé núna ekki tekið gilt. Hún hefur í heild verið fyrirmyndarborgari,“ segir lögmaðurinn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Leggja fram kvörtun vegna framferðis Creditinfo

Leggja fram kvörtun vegna framferðis Creditinfo
Fréttir
Í gær

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Í gær

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Í gær

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur
Fréttir
Í gær

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“