fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 09:30

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjár manneskjur frá Kólumbíu hafa verið ákærðar fyrir stórfellt fíkniefnabrot sem framið var fimmtudaginn 19. febrúar 2026. Um er að ræða tvo karlmenn, annan fæddan 1990 og hinn 2001, og eina konu, sem er fædd árið 2000.

Þeim er gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 2.370 ml af kókaíni á vökvaformi, með rösklega 50% styrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Fíkniefnin fluttu ákærðu innvortis til Íslands sem farþegar með flugi TO7478 frá París í Frakklandi til Keflavíkurflugvallar. Voru þau hvert og eitt með frá 15 og upp í 33 pakkningar af efnunum innvortis.

Krafist er refsingar yfir fólkinu og auk þess upptöku á kókaínvökvanum og þremur símum þeirra sem voru haldlagðir við rannsókn málsins.

Málið er til meðferðar við Héraðsdóm Reykjaness.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“