fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 12:53

Þórdís Lind Leiva. Mynd: Íris Dögg Einarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar sínar, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda, sem er algengari en margir gera sér grein fyrir, en talið er að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.

Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð.

Nýja verndin er viðbót við hefðbundnar sjúkdómatryggingar, en ekki sérstök trygging. Með breytingunni vill Vörður mæta auknum þörfum samfélagsins í tengslum við frjósemisvanda, svo fleiri njóti verndar.

Nýja verndin felur annars vegar í sér fjárhagslegar bætur, ef einstaklingar eða pör glíma við ófrjósemi og þurfa að fara í frjósemismeðferð. Auk þess veitir hún aðgang að samtalsmeðferð ef upp koma áföll eða erfiðar aðstæður í ferlinu.

Vörður er hluti af Arion og býðst þeim sem erum með sjúkdómatryggingu hjá Verði og þurfa á frjósemisverndinni að halda lán hjá Arion á sérstökum kjörum og án greiðslumats.

Þessi breyting er liður í vegferð Varðar að þróa tryggingar sem endurspegla betur raunverulegar þarfir fólks, svo fleiri geti notið verndar. Á síðustu misserum hefur Vörður kynnt fleiri nýjar viðbætur við tryggingarnar sínar,  neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis sem nú er hluti af heimilistryggingum Varðar, stuðningsleyfi fyrir þolendur ofbeldis sem nú er hluti af sjúkratryggingum atvinnurekenda og meðgöngu- og foreldravernd sem hluta af sjúkdómatryggingum félagsins.

„Við erum ákaflega stolt af þessari viðbót við núverandi sjúkdómatryggingar okkar, enda er markmið okkar að vera til staðar fyrir fólk þegar mest á reynir. Það á svo sannarlega við þegar einstaklingar glíma við ófrjósemi. Markmiðið er að draga úr fjárhagslegu álagi og auka svigrúm fyrir fólk svo það geti einbeitt sér að því sem skiptir það mestu máli,“ segir Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður Líf- og heilsutrygginga hjá Verði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Í gær

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta
Fréttir
Í gær

Segir stöðu Rússlands aldrei hafa verið veikari síðan innrásin hófst

Segir stöðu Rússlands aldrei hafa verið veikari síðan innrásin hófst
Fréttir
Í gær

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“