fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. maí 2026 16:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oddný Harðardóttir, fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, segist hafa þrennt um sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fóru um helgina að segja.

Nefnir hún í fyrsta lagi að Samfylkingin hafi unnið stórsigur í Suðurnesjabæ þar sem flokkurinn fékk 34% atkvæða. Næst nefnir hún afsögn Guðmundar Árna Stefánssonar, oddvita flokksins í Hafnarfirði. Hann ákvað að segja af sér sem oddviti og varaformaður flokksins eftir að Samfylkingin tapaði tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði. Þannig hafi Guðmundur viljað taka ábyrgð á slæmu gengi. Oddný ber þetta saman við stöðu Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í Reykjavík, sem hafi lýst yfir sigri þrátt fyrir að hafa tapað þremur borgarfulltrúum. Loks nefnir Oddný að Samfylkingin í borginni hafi líklega liðið fyrir klofning innan flokksins og eins hafi frambjóðendur skort kjarkinn til að ræða það sem vel hafði gengið á kjörtímabilinu og snúið sér frekar að því að lepja upp gagnrýni andstæðinga. Þannig hafi flokkurinn ekki bætt við sig í borginni.

Oddný skrifar á Facebook:

„Hér koma þrjú atriði sem ég vil segja um sveitarstjórnarkosningar:

  1. Samfylkingin í Suðurnesjabæ vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Fékk 34% atkvæða og þrjá menn kjörna. Hafði verið í meirihluta á kjörtímabilinu. Aðeins vantaði 6 atkvæði til að fá fjórða manninn inn. Hvar á landinu fékk flokkurinn meira fylgi.
  2. Mér finnst tíðindum sæta að Guðmundur Árni varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnarfirði segi af sér vegna þess að flokkurinn tapaði tveimur mönnum. Til samanburðar lýsir Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík yfir sigri þegar flokkurinn tapar þremur mönnum eftir að hann sjálfur hafði klúðrað frá sér borgarstjórastólnum á kjörtímabilinu. Ólíkt hafast þeir að. Takk fyrir samstarfið Guðmundur Árni.
  3. Ekkert fer verr í kjósendur en innanflokksátök. Þau voru ekki samstíga í Samfylkingunni í Reykjavík og engum duldist að forysta flokksins fór gegn borgarstjóranum. Þau fundu fæst það hjá sér að tala stolt um hvað gott hafi verið gert í valdatíð flokksins í borginni. Lápu frekar upp aftur og aftur gagnrýni aldstæðinga. Það hafði þær afleiðingar, að mínu mati, að flokkurinn bætti ekki við sig í borginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Felldu tígrisdýr nálægt borginni Leipzig – Réðist á og stórslasaði aldraðan mann

Felldu tígrisdýr nálægt borginni Leipzig – Réðist á og stórslasaði aldraðan mann
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“
Fréttir
Í gær

Jóhannes með skilaboð til nýkjörinna sveitarstjórnarmanna – „Hvort heldur þú að þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð fyrir þessi börn?“

Jóhannes með skilaboð til nýkjörinna sveitarstjórnarmanna – „Hvort heldur þú að þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð fyrir þessi börn?“
Fréttir
Í gær

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viktoría Líf er látin aðeins 22 ára – Safnað fyrir útför og til styrktar 2 ára syni hennar

Viktoría Líf er látin aðeins 22 ára – Safnað fyrir útför og til styrktar 2 ára syni hennar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viðbrögð við kosningum í borginni: Gleði og svekkelsi, buxur Ólafs vekja athygli og hvað með næstu kosningar?

Viðbrögð við kosningum í borginni: Gleði og svekkelsi, buxur Ólafs vekja athygli og hvað með næstu kosningar?