

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni frétta um mann sem er sagður hafa ógnað nemendum í Lækjarskóla með hníf í hendi. Samkvæmt yfirlýsingunni hafa lögregla og sérsveit leitað mannsins í dag en hann er enn ófundinn.
Yfirlýsing lögreglu:
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu fyrr í dag um að maður hefði elt unga stúlku að skólalóð í Hafnarfirði, mögulega vopnaður hnífi. Mannsins hefur verið leitað í dag en hann er enn ófundinn.
Naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við leitina.
Atvikið er í skoðun en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“
DV fékk ábendingu um málið fyrr í dag en þar var sagt að maðurinn hefði hlaupið á eftir stúlkum sem eru nemendur við skólann með hníf í hendi. Um var að ræða börn á aldrinum 10-11 ára sem voru að koma úr leikfimi.
Sjá einnig: Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi