fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Heimir Már segir hægri menn býsnast yfir innflytjendum – „Staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 19:30

Heimir Már bendir á að Íslendingar hafi sömu réttindi á EES svæðinu og þarlendir íbúar hafi hér. Mynd/Flokkur fólksins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, segir að hægrimenn býsnist yfir að atvinnulífið hafi kallað 60 til 70 þúsund innflytjendur til landsins. En þetta fólk hafi haldið upp mörgum greinum atvinnulífsins og staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin ár.

„Það búa um 50 þúsund Íslendingar í útlöndum, lang flestir í Evrópu þar sem þeir njóta ALLRA sömu réttinda og heimamenn. Hvort sem er til atvinnuleysisbóta, örorkubóta, ellilífeyris, heilbrigðisþjónustu, menntunar, fæðingarorlofs og allrar félagslegrar þjónustu,“ segir Heimir Már í færslu á samfélagsmiðlum í gær sem hefur fengið mikla athygli.

Nefnir hann að frjáls för fólks og réttinda sé einn af fjórum hornsteinum EES samstarfsins sem hafi fært Íslendingum meiri velferð og tækifæri á 500 milljón manna markaði en nokkur annar samningur.

„Svo býsnast hægrimenn og konur yfir því að atvinnulífið hér hefur kallað til sín á bilinu 60-70 þúsund íbúa af EES svæðinu til að halda uppi byggingastarfseminni, ferðaþjónustunni, hvort sem er á Keflavíkurflugvelli, hótelum, veitingastöðum og öllum öðrum sviðum ferðaþjónustunnar. Já og fiskvinnslunni um allt land,“ segir Heimir Már.

Þetta fólk manni stóran hluta starfa á leikskólum, hjúkrunarheimilum og víðar og greiðir hér skatta og gjöld. Það hafi því sömu réttindi og við. Rétt eins og við gerum á EES svæðinu.

„Þessi mannafli, þessi 60-70 þúsund íbúar EES sem þurfa ekkert leyfi til að vinna hér og setjast hér að hefur staðið undir öllum hagvexti Íslands undanfarin 10-15 ár,“ segir hann að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“