

Stærsti smokkaframleiðandi heims mun þurfa að hækka verð umtalsvert út af stríðinu í Íran. Efni unnin úr olíu eru notuð í smokka.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Goh Miah Kiat, forstjóri smokkaframleiðandans Karex, segir að stríðið í Íran valdi því að fyrirtækið þurfi að hækka verð um allt að 30 prósent. Jafn vel meira ef stríðið dregst á langinn.
Karex, sem er malasískt fyrirtæki, er stærsti smokkaframleiðandi heims og framleiðir meira en fimm milljarða smokka á hverju ári. Framleiðir fyrirtækið meðal annars smokka fyrir tegundir á borð við Durex og Trojan en einnig fyrir opinberar stofnanir, svo sem heilbrigðiskerfið NHS í Bretlandi.
Eins og flestir vita hefur stríð Bandaríkjanna og Ísraels í Íran valdið gríðarlegum truflunum og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Íranir hafa tögl og hagldir á Hormússundi þar sem 20 prósent af olíu heimsins fara venjulega óhindrað um.

Olían úr Persaflóa fer að mestu leyti til Asíu og knýr áfram iðnaðarframleiðsluna þar. Karex er eitt af þeim fyrirtækjum sem reiðir sig á bæði óhindraðar skipasiglingar og efni unnin úr olíu, svo sem ammoníak til að varðveita latex og sílikonsleipiefni.
Goh segir að eftirspurnin eftir smokkum hafi vaxið um þriðjung á þessu ári vegna óvissunnar í heimsmálum. Fólk hlaupi ekki til og stofni fjölskyldur við þessar aðstæður.
„Á slæmum tímum er þörfin fyrir smokka meiri af því að fólk er í óvissu með framtíð sína, það veit ekki hvort það verður með atvinnu á næsta ári,“ segir Goh. „Ef þú eignast barn núna þá er það auka munnur til að fæða.“
Netverjar hafa gert grín að þessum fréttum þó óskemmtilegar séu. „Nokkrir smokkar hefðu getað komið í veg fyrir þetta stríð,“ segir einn í athugasemdum á samfélagsmiðlum.