fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Akureyrarmálið: Kæra vegna nauðgunar ekki talin líkleg til sakfellis – Brot vegna dreifingar á myndbandi til héraðssaksóknara

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 10:00

Kristján Einar Sigurbjörnsson - Mynd: Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Norðurlandi eystra hætti rannsókn á kæru vegna nauðgunar á Akureyri en sendi til embættis héraðssaksóknar mál er varðar brot gegn kynferðislegri friðhelgi.

Þetta staðfestir Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Norðurlandi eystra, í samtali við DV.

„Þetta snýst um myndbirtingu,“ segir Skarphéðinn, um þann hluta málsins sem er kominn á borð héraðssaksóknara, sem mun taka ákvörðun um ákæru. „Þetta er svona einn angi af þessu máli,“ bætir hann við.

Sjá einnig: Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Segir Skarphéðinn að það sé álit ákærusviðs lögreglunnar  að kæra um nauðgun sé ekki líkleg til sakfellis miðað við gögn málsins. Hann bendir á að þessi ákvörðun sé kæranleg til ríkissaksóknara, sem gæti þá eftir atvikum fyrirskipað lögreglu að halda áfram rannsókn á nauðgunarhluta málsins.

Sterkar sannanir fyrir broti gegn kynferðislegri friðhelgi

Málið hefur vakið mikla athygli, ekki síst eftir að greint var frá því í fjölmiðlum að einn sakborninga væri áhrifavaldurinn Kleini, Kristján Einar Sigurbjörnsson. Hann sá sig knúinn til að birta yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni þar sem hann lýsti yfir sakleysi í málinu.

Sjá einnig: Kleini lýsir yfir sakleysi

Um tíma voru grunaðir í málinu taldir vera þrír en ljóst er að a.m.k. þrír menn voru kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu. Nafn manns var að ósekju bendlað við meint brot á samfélagsmiðlum en lögregla yfirheyrði hann þó að konan hefði ekki sakað um brot. Eva Hauksdóttir, réttargæslumaður brotaþola í málinu, segir að konan hafi ekki verið viss um nöfn meintra gerenda og því hafi lögregla yfirheyrt þá sem voru á vettvangi. Stúlkan hafi sakað tvo menn um brot gegn sér. Fyrir liggur að annar þessara manna er Kleini.

„Allir sem vitað var að voru á staðnum fengu stöðu grunaðra, en það voru tveir sem hún telur að hafi brotið gegn sér,“ segir Eva.

Eva segir að skjólstæðingur hennar hafi ekki tekið ákvörðun um hvort hún kæri til ríkissaksóknara ákvörðun lögreglunnar um að hætta rannsókn á nauðgun. Kærufrestur er einn mánuður.

Eva segir að sannanir um brot gegn kynferðislegri friðhelgi séu sterkar og býst hún við ákæru og sakfellingu í þeim hluta málsins. Segir hún að einn sakborningur sé sakaður um þetta brot, sem snerist um birtingu á myndbandi frá vettvangi. Hún vill ekki gefa upp nafn þess sakbornings og liggur því ekki fyrir hvort það er Kleini.

„Ég get ekki sagt þér meira en að það er einn sakborningur grunaður um það,“ segir Eva.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Halla og Sólveig takast á um umdeildu launahækkunina – „Til háborinnar skammar“

Halla og Sólveig takast á um umdeildu launahækkunina – „Til háborinnar skammar“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Landsvirkjun greiðir 165 milljóna Bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð

Landsvirkjun greiðir 165 milljóna Bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona
Fréttir
Í gær

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“
Fréttir
Í gær

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“