fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Fréttir

Biðlar til ferðamanna að bæta umgengni – Sýnir myndir af ótrúlegum sóðaskap

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 8. júlí 2025 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstaklingur sem segist vinna í ferðaþjónustunni á Íslandi vekur athygli á umgengni ferðamanna og segir þá um margt mega bæta sig.

Umgengni lýsir innri manni“ segir máltækið og það má velta fyrir sér hvort það eigi við um fólkið sem skildi við gististað sinn svona. 

Mig langar að fjalla um mál varðandi hegðun ferðamanna á Íslandi. Ég vinn í ferðaþjónustugeiranum og verð oft vitni að virðingarleysi fyrir þeim stöðum sem gestir dvelja á og fyrir fólkinu sem rekur þá, skrifar viðkomandi í nafnlausri færslu í Facebookhópnum Iceland – Tips for travelers.

Það er óþægilegt að sjá hluti eins og óhreina diska með matarafgöngum settum aftur inn í skápa, rusli og mat dreift um herbergi og bílastæði, og að skilja almennt drasl eftir sig. Gangið þið um heimili ykkar með sama hætti?

Segir viðkomandi að slík umgengni virðist oftar fylgja gestum sem koma frá Indlandi og Kína. Um er að ræða gistingu þar sem reykingar eru ekki leyfðar, og sem leigð er sem Airbnb í gegnum Booking.com.

Auðvitað hegða ekki allir sér svona, margir sýna virðingu, en þetta mynstur sem er erfitt að hunsa.

Vinsamlegast, hvaðan sem þið komið, komið fram við staðina sem þið heimsækið eins og þið mynduð koma fram við ykkar eigið heimili. Við skulum öll vinna saman að því að halda Íslandi hreinu, fallegu og velkomnu. Það sem þið gætuð gert til að hjálpa:

  1. Safnið öllu rusli og setjið það í eina tunnu eða poka.
  2. Setjið notuð handklæði á einn stað (til dæmis á baðherbergið eða baðkarið).
  3. Skiljið rúmið eftir óumbúið (ekki reyna að búa um það).
  4. Þvoið allt óhreint leirtau eða setjið það allt í vaskinn.
  5. Slökkvið á ljósum, hita, loftkælingu og raftækjum.
  6. Athugið hvort einhverjir persónulegir hlutir séu eftir í öllum skúffum, skápum og innstungum.
  7. Setjið lykilinn á umsaminn stað eða skilið honum í móttökuna.
  8. Sendið skilaboð ef eitthvað skemmist eða þarfnast lagfæringar.
  9. Yfirgefið gististaðinn á réttum tíma eða látið vita ef þið eruð að verða sein.“

Með færslunni eru birtar fjöldi mynda sem sýna vægast sagt slæma umgengni og virðingarleysi fyrir eiganda gististaðarins eða íbúðarinnar og þeim sem þarf að þrífa staðinn.

Í fjölda athugasemda við færsluna eru netverjar vægast sagt hneykslaðir á umgengninni. Mæla þeir með nokkrum ráðum eins og að rukka þrifgjald og rukka það hátt fyrirfram og alls ekki endurgreiða krónu þegar umgengnin er svona, aðrir mæla með að taka aðeins á móti gestum sem eru með góð meðmæli (e. review).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Í gær

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga
Fréttir
Í gær

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots
Fréttir
Í gær

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“