fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

„Því miður þá sameinast þjóðin ekki í sorg þegar þetta góða fólk deyr“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 8. nóvember 2024 09:00

Sigmar Guðmundsson Mynd: Heiða Helgadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég þykist vita að Íslensk þjóð yrði slegin miklum harmi ef allir íbúar Árneshrepps féllu frá í einu vetfangi,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Þar gerir hann að umtalsefni sláandi tölur um dauðsföll vegna lyfja og ávana- og fíkniefna en alls létust 56 í fyrra af þeim völdum. Um er að ræða met hvað þetta varðar.

Í grein sinni bendir Sigmar á að íbúar í Árneshreppi séu 53 og þó um sé að ræða eitt fámennasta sveitarfélag landsins geti allir verið sammála um að fólkið sem þar býr skipti máli fyrir íslenskt samfélag.

„Venjulegt, harðduglegt íslenskt fólk. Feður, mæður, bræður, systur, ömmur og afar.“

Sigmar segir að íslensk þjóð yrði slegin miklum harmi ef allir íbúar Árneshrepps féllu skyndilega frá. „Það yrði hræðileg blóðtaka fyrir íslenskt samfélag og þungbært áfall. Þjóðin myndi sameinast í mikilli sorg. Eðlilega. Það er nefnilega sárt þegar fólkið okkar fellur frá,“ segir hann.

Feður, mæður, bræður og systur

Hann bendir á að 56 dauðsföll vegna lyfjaeitrunar séu sennilega vanmat því í tölfræðina vanti andlát sem rekja megi til ofneyslu lyfja þótt dánarorsök sé skráð sem önnur.

„Þetta eru fleiri en búa í Árneshreppi. Því miður þá sameinast þjóðin ekki í sorg þegar þetta góða fólk deyr. Þess í stað endar það sem tölfræði í gagnagrunni Landlæknis. Í exelskjali. Öll hétu þau þó eitthvað. Þetta voru jú feður, mæður, bræður, systur, ömmur og afar,“ segir hann.

Sigmar segir að þessir einstaklingar sem nú eru látnir vegna ömurlegs sjúkdóms skipti líka máli.

„Í þessum hópi var eitt barn undir átján. Ekki komið með aldur til að kaupa vín en samt dáið úr fíknisjúkdómnum. Ekki get ég sett mig í spor syrgjandi aðstandenda sem hafa misst svona mikið. Og svona sviplega. En ég held samt að við ættum öll að reyna. Þó ekki væri nema andartak. Þetta var ekki bara einhver einn í einhverri tölfræði, heldur manneskja af holdi og blóði. Barn sem átti annað og betra skilið,“ segir hann.

„Er eitthvað sorglegra?“

Í þessum hópi voru 38 einstaklingar á aldrinum 18 til 44 ára. Spyr hann hvað mörg ung börn hafi misst foreldra úr þessum hópi.

„Ég veit ekki svarið en þau hafa væntanlega verið nokkuð mörg. Þessi missir fylgir þeim út lífið og hefur meiri áhrif á þau en við getum ímyndað okkur. Sum þeirra munu ekki einu sinni eiga minningar um foreldra sína, sem dóu frá börnunum sínum vegna veikinda. Er eitthvað sorglegra en lítið barn sem hefur misst mömmu eða pabba? Varla. Það fylgir reyndar ekki sögunni í exelskjali Landlæknis en er staðreynd engu að síður.“

Sigmar fékk átakanlegt símtal frá föður tveggja bræðra: Létust með tólf klukkustunda millibili – „Sagan sem hann bað mig um að segja er sorglegri en orð fá lýst“

 

Sigmar bendir svo á að sautján úr þessum hópi hafi verið á aldrinum 45 til 74 ára. Örugglega feður og mæður líka.

„Og ætli það megi ekki slá því föstu að á bak við þessa tölfræði séu barnabörn sem hafi grátið með ekka í kirkju þegar afi eða amma var jarðsungin. Gætum við kannski mögulega reynt af veikum mætti að kveikja á þeirri staðreynd þegar lesum þessar örfáu fréttir sem sagðar eru af öllu nafnlausa fólkinu sem finna má í talnagrunni Landlæknis?“

„Skelfir mig mikið“

Sigmar segir að þróunin sé mjög slæm og fari hratt versnandi. Þannig voru lyfjaandlátin 23 fyrir tíu árum en í fyrra voru þau 56. „Fyrir utan alla hina sem faldir eru annars staðar í tölfræði hins opinbera en dóu engu að síður úr sama sjúkdómi. Þessi aukning skelfir mig mikið.“

Sigmar segir að lokum að við eigum ekki að sætta okkur við þessi dauðsföll. Samfélagið sé að missa svo mikið.

„Auðvitað skiptir það gríðarlegu máli að efla þau úrræði sem við eigum og hafa reynst vel, til að talan lækki í exelskjalinu sem haldið er utan um af fagfólkinu í Katrínartúni. Fyrir því hef ég gert grein í fleiri ræðum og greinum en ég hef tölu á. En það skiptir samt enn meira máli að við áttum okkur á, í eitt skipti fyrir öll, að þetta er fólk. Ekki tölur á blaði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ari segir svör stjórnmálamanna hafa verið sláandi – „Allir sögðu nei“

Ari segir svör stjórnmálamanna hafa verið sláandi – „Allir sögðu nei“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“
Fréttir
Í gær

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað

Edition-málið – Móðirin sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana svo í hjartað
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Andri er sleginn: „Undirbúningurinn sem ég fékk var nánast verri en enginn“

Andri er sleginn: „Undirbúningurinn sem ég fékk var nánast verri en enginn“
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“