fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Martröð í París: Óprúttnir aðilar hirtu rúma hálfa milljón af debetkorti Íslendings – Góðverkið dró dilk á eftir sér

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. nóvember 2024 11:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki hefur fallist á endurgreiðslukröfu einstaklings gegn fjármálafyrirtæki en viðkomandi varð fyrir barðinu á óprúttnum aðilum þegar hann var á ferðalagi í Frakklandi í janúar í fyrra.

Maðurinn kvaðst hafa verið á ferðalagi í Frakklandi, París nánar tiltekið, þann 11. til 15. janúar í fyrra þegar hann uppgötvaði síðdegis þann 14. sama mánaðar að bæði debet- og kreditkortin hans væru horfin úr kortaveskinu. Fór hann inn á app varnaraðila (innsk.blm. ónafngreinds fjármálafyrirtækis) þar sem hann sá fjölda færslna með debetkortinu sem hann kannaðist ekki við og fyrsta færslan væri frá því um þrjú að nóttu til.

Borgaði í stöðumæli fyrir ungan mann

Maðurinn hafði umsvifalaust samband við kortafyrirtæki sitt á Íslandi og lét loka viðkomandi kortum. Hélt maðurinn því fram að um hafi verið að ræða tólf færslur með debetkortinu, þar á meðal tvær í hraðbanka, en engar með kreditkortinu.

„Samkvæmt yfirliti frá kortafyrirtækinu var meginþorri hærri færslnanna staðfestur með PIN númer en tvær lægstu færslurnar með snertilausri greiðslu. Sóknaraðili kveðst ekki vita fyrir víst hvernig óviðkomandi hafi komist yfir debetkort hans og PIN númer en telur líklegast að það hafi gerst þegar hann hafi farið á öldurhús um kvöldið og notað debetkortið til að borga í stöðumæli fyrir ungan mann sem hann hafi hitt þá um kvöldið en þá greiðslu hafi hann staðfest með PIN númeri kortsins,“ segir í umfjöllun nefndarinnar. Miðað við lýsingu mannsins dró þessi greiðsemi dilk á eftir sér.

Gerði kröfu um endurgreiðslu

Maðurinn gerði kröfu um að fá 579.617 krónur endurgreiddar ásamt vöxtum en þessu hafnaði viðkomandi fjármálafyrirtæki. Byggði fyrirtækið á því að úttektirnar með debetkortinu hefðu verið framkvæmdar af manninum eða með hans samþykki.

„Því til stuðnings vísar hann til þess að framvísun korts á afgreiðslustað og staðfestingu greiðslu með PIN númeri teljist vera sterk sannvottun greiðslu í skilningi laga nr. 114/2021. Greiðslufyrirmælin beri þar af leiðandi ekki annað með sér en að sóknaraðili hafi sjálfur heimilað greiðslurnar enda hafi hann einn kortið undir höndum og vitneskju um PIN númerið. Þá bendi varnaraðili að sóknaraðili hafi ekki sannað að debetkorti hans hafi verið stolið og að það hafi verið notað með ólögmætum hætti.“

Maðurinn benti á í málatilbúnaði sínum að færslurnar hafi margar hverjar verið á veitingastöðum og í söluturnum þar sem nokkuð augljóst sé að það þurfi vitorðsmenn til að ná út slíkum fjárhæðum á skömmum tíma. Það sé vísbending um að hann hafi orðið fyrir barðinu á skipulagðri glæpastarfsemi. Þá hafi hann fengið staðfestingu frá kortafyrritæki sínu að minnst einu sinni hafi verið reynt að nota kreditkortið með röngu PIN-númeri. Þótt báðum kortunum hafi verið stolið um leið hafi sömu aðilar aðeins komist yfir annað PIN-númerið.

Nefndin klofnaði

Úrskurðarnefndin klofnaði í niðurstöðu sinni og vildi minnihluti hennar meina að maðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi þegar hann gætti þess ekki að að þriðji aðili gæti komist yfir PIN-númerið með því einu að horfa yfir öxl hans.

Meirihluti nefndarinnar úrskurðaði manninum hins vegar í vil.

„Þótt á það verði fallist að sóknaraðili hafi sýnt af sér vangæslu við notkun kortsins við þær aðstæður sem lýst er í málavöxtum þá verður ekki talið að hann hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við meðferð kortsins eða upplýsingum því tengdu, eða brotið þannig gegn skilmálum varnaraðila, að sóknaraðili hafi firrt sig rétti til að krefjast niðurfellingar á færslum. Er þá m.a. litið til þess að sóknaraðili tilkynnti tafarlaust um þjófnað og ætlaða misnotkun á kortinu,“ segir í niðurstöðu meirihlutans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Í gær

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga
Fréttir
Í gær

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots
Fréttir
Í gær

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“