fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Skúla rafvirkja stefnt fyrir dóm

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 15. desember 2022 18:00

Héraðsdómur Reykjaness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúla rafvirkja ehf, sem og Skúla Birgi Gunnarssyni, var stefnt fyrir Héraðsdóms Reykjaness vegna atvika sem vörðuðu bilun í varmadælu.

Dómur var kveðinn upp í málinu þann 12. desember. Dómkröfur stefnanda í málinu voru þær að Skúla yrði gert að greiða honum 421.000 krónur auk dráttarvaxta frá 1. febrúar á þessu ári til greiðsludags.

Skúli krafðist sýknu í málinu undan kröfum stefnandans.

Málsatvik eru þau að Skúli tók að sér að tengja varmadælu og stjórnstöð við rafmagn í húsnæði stefnanda. Tenging dælunnar misfórst með þeim afleiðingum að hún skemmdist. Síðan segir í texta dómsiss.

„Í framhaldinu mun stefnandi hafa tekið niður varmadæluna og flutt til umboðsaðila hennar, Fríorku ehf., sem hafi í fyrstu talið dæluna ónýta. Mun stefndi, Skúli Birgir, í kjölfar þess hafa sett sig í samband við vátryggingafélag stefnda, Skúla rafvirkja ehf., Vörð tryggingar hf., sem hafi fallist á skaðabótaskyldu vegna tjónsins og hafi af þeim sökum greitt andvirði varmadælunnar, að frádreginni eigin áhættu vátryggingartaka, það er „Varmadæla skv. reikningi frá Fríorku“ líkt og greinir í
tölvubréfi vátryggingafélagsins vegna uppgjörs tjónabóta frá 5. apríl 2022 auk þess sem í bréfinu segir að um sé að ræða „fullnaðar- og lokagreiðslu vegna þessa tjóns og allar kröfur vegna málsins eru að fullu greiddar.“ Nam greiðsla vátryggingafélagsins 1.239.516 krónum sem innt var af hendi til tjónþola, stefnanda máls þessa.“

Bæturnar frá tryggingafélaginu voru greiddar á reikning stefnandans í málinu. Enn fremur liggur fyrir að í stað þess að kaupa nýja varmadælu hafi verið brugðið á það ráð að gera við dæluna sem skemmdist og var viðgerðri dælunni komið fyrir og hún tengd í húsi stefnanda af hálfu annars rafvirkjameistara. Síðan var sendur reikningur á Skúla rafvirkja fyrir kostnaðinum. Skúli borgaði ekki, honum var birt innheimtuviðvörun og loks var honum stefnt fyrir dóm vegna málsins.

Dómurinn leit svo á að stefnandi í málinu væri að minnsta kosti jafn vel settur og ef ný varmadæla hefði verið keypt vegna bótanna sem lagðar voru inn hjá honum og ætlaðar voru til kaupa á nýrri dælu.  „Að mati dómsins hefur stefnandi því ekki sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir tjóni umfram það sem þegar hefur verið bætt að fullu vegna bilunar á varmadælunni með greiðslu vátryggingabóta, enda nýtur engra gagna um ætlaðan viðgerðarkostnað á vélinni. Þá verður jafnframt ekki fram hjá því litið að meta ber stefnanda það til gáleysis að hafa sjálfur ráðist í gangsetningu vélarinnar án aðkomu stefndu eða sérfróðs aðila og án þess að ganga fyllilega úr skugga um að tengingar hennar væru réttar,“ segir í texta dómsins.

Það var því dómsniðurstaða að maðurinn ætti engar kröfur á hendur Skúla rafvirkja sem var sýknaður í málinu og þarf stefnandinn að greiða honum 750 þúsund  krónur í málskostnað.

Dóminn má lesa hér

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Í gær

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki
Fréttir
Í gær

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki