

Spjallþáttastjórnandinn Stephen Colbert hefur nú sagt skilið við sjónvarpsstöðina CBS. Tæpt ár er síðan stöðin ákvað að slaufa þáttunum sem hafa gjarnan verið gagnrýnir í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Colbert ákvað að ljúka rúmlega þriggja áratuga göngu þáttanna með látum og fékk bítilinn Paul McCartney til að hjálpa sér að kveðja áhorfendur, en þeir fluttu saman bítlalagið Hello, Goodbye. Þá stigu á svið með Colbert fjölskylda hans sem og starfsmenn þáttanna.
Þeir Colbert og McCartney færðu sig svo baksviðs þar sem þeir stóðu við rafmagnskassa og rofa sem var merktur þáttunum. Það var svo Bítillinn sem tók í rofann – og tók þar með rafmagnið af Ed Sullivan-leikhúsinu fræga þar sem þættirnir voru til húsa. Margir hafa túlkað þetta sem skot á CBS fyrir að slaufa þessum vinsælu þáttum. Síðan tóku við teiknaðar tæknibrellur þar sem byggingin virtist verða fyrir barðinu á grænum geisla og breyttist svo í litla snjókúlu sem stendur yfirgefin á götu í New York-borg.
Græni geislinn var tilvísun í grínatriði fyrr í þættinum þar sem Colbert brá á leik með kollega sínum, Jon Stewart úr The Daily Show. Þeir stóðu saman fyrir framan risastór græn ormagöng sem höfðu birst í þættinum og valdið ringulreið. Stewart sagði: Sjáið þið ekki að þessi ormagöng eru ekki ormagöng? Þau eru myndlíking. Þið getið ekki hunsað þau. Eina valið sem þið hafið er hvernig þið ákveðið að ganga í gegnum þau. Þið getið farið í gegn sparkandi og bítandi eða þið getið gert það sem þið hafið gert síðustu árin andspænis myrkrinu. Þið getið starað á þau og hlegið.“
Þá birtust fleiri kollegar við hlið grænu ormaganganna, þeir Jimmy Fallon, Jimmy Kimmel og John Oliver.
„Við komum til að segja að við munum sakna þín. Síðkvöldin verða ekki þau sömu án þín,“ sagði Kimmel. Síðan veltu gestirnir fyrir sér hvort Colbert myndi kannski sogast inn í ormagöngin en Colbert sagði þá: „Strákar, strákar, ég held ég sé búinn að ná þessu. Þetta virðast vera endalokin, og ég vildi að það væri ekki svo en það er ekki undir mér komið. Það eina sem við höfum eitthvað að segja um er hvernig við verjum þeim tíma sem okkur hefur verið úthlutað.“
Loks má nefna að Colbert ákvað líka að senda CBS táknrænan miðjufingur með því að spila lag úr teiknimyndunum um Smáfólkið (e. Peanuts) en lagið er höfundarréttarvarið og hefur rétthafinn áður höfðað mál gegn þeim sem nota lagið án leyfis.
„Úps, ég vona að þetta kosti CBS ekki peninga,“ sagði Colbert kaldhæðinn.