Samningar náðust í dag milli Samtaka atvinnulífsins, VR, samfloti iðn- og tæknigreina og Landssambandi verslunarmanna. Ríkisstjórnin boðaði fjölgun íbúða og einföldun barnabóta.
Talið er að íslensk yfirvöld hafi njósnað um 500 konur á aldrinum 12-61 árs í hernáminu vegna siðferðismála. Þingmaður Pírata endurflytur nú þingályktunartillögu um meint mannréttindabrot í garð kvennanna.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir fráleitt að hann standi of nálægt Landsdómsmálinu til að skrifa bók um það. Nálægðin við málið hafi einmitt hjálpað honum við skrifin.
Fréttavaktin er á dagskrá Hringbrautar alla virka daga kl. 18:30.