fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Segir að árásin á brúna hafi kveikt þörf fyrir „hefnd“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. október 2022 08:32

Öflug sprenging varð á Kerch-brúnni í fyrstu árás Úkraínumanna á hana. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sergei Aksyonov, héraðsstjóri á Krímskaga, segir að árásin á Kerch brúna á laugardaginn hafi kveikt þörf fyrir „hefnd“. Brúin skemmdist mikið í sprengingu á laugardaginn. Hún er mjög mikilvæg fyrir flutning á hergögnum og nauðsynjum til Krím og suðurhluta þess svæðis sem Rússar hafa hertekið í Úkraínu.  Brúin hefur einnig mikið táknrænt gildi fyrir Rússa og árásin á hana var þungt högg fyrir þá.

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hafði sjálfur yfirumsjón með gerð brúarinnar, sem er sú lengsta í Evrópu. Hún var tekin í notkun 2018.

Þegar Aksyonov ræddi við fréttamenn eftir sprenginguna sagði hann að „staðan væri viðráðanleg, óþægileg, en ekki banvæn“. „Auðvitað hefur þetta vakið tilfinningar og það er heilbrigð löngun til að leita hefnda,“ sagði hann.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni sem varð þremur að bana og olli miklu tjóni á brúnni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni