
Enn einn undirskriftalistinn í máli tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar, sem er betur þekkt sem Ingó Veðurguð, hefur verið lagður fram. Nú er þjóðhátíðarnefnd kvött til að endurskoða ekki ákvörðun sína að afbóka hann á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum , en þar átti hann að sjá um hinn fræga brekkusöng.
Líkt og flestir vita hafa meira en 30 ásakanir á hendur Ingó birst á samfélgasmiðlum á síðustu dögum, en þar er hann sakaður um kynferðislegt ofbeldi. Sjálfur hefur hann neitað ásökununum, og hyggst leita réttar síns.
Málið byrjaði í raun þegar konur tengdar TikTok-síðunni Öfgar og hópnum Aktívísmi gegn nauðgunarmenningu, skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem nefndin var hvött til að skýra val sitt á skemmtikröftum sem væru meintir kynferðisbrotamenn. Í kjölfarið birtu Öfgar fjölda ásakana á hendur Ingó sem varð til þess að hann var afbókaður.
Eftir þetta var settur fram undirskriftalisti þar sem þess var krafist að sú ákvörðun þjóðhátíðarnefndar yrði endurskoðuð.
Nú hefur undirskriftalisti til höfuðs þeim lista verið settur fram. Þar er nefndin sérstaklega hvött til að endurskoða ekki ákvörðunina. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 650 einstaklingar skrifað undir. Á síðu listans má sjá þessi skilaboð:
„Við undirrituð skorum á þjóðhátíðarnefnd ÍBV að endurskoða EKKI ákvörðun sína um að afbóka Ingólf Þ. á Þjóðhátíð 2021. Það er afar viðunandi niðurstaða og ósköp eðlileg viðbrögð.
Það er eðlilegt að þjóðhátíðarnefnd ákveði hverjum skal bjóða að koma fram á Þjóðhátíð og nefndinni ber ekki að leyfa vafasömum mönnum að koma þar fram. Þó engin kæra liggi fyrir er EKKI brotið á mannréttindum Ingólfs að afbóka hann.“