fbpx
Sunnudagur 01.febrúar 2026
Fréttir

Þrír látnir eftir eldsvoðann í gær – Einn í haldi lögreglu

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 26. júní 2020 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír eru látnir og tveir eru á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Reykjavík í gær, en einn af þeim sem var fluttur á Landspítalann hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu.

Tveir voru handteknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu, en síðan sleppt eftir skýrslutökur, einn er í haldi hennar í þágu rannsóknarinnar en kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur enn fremur verið kölluð til vegna málsins.

Rannsókn lögreglu á brunavettvangi hófst formlega eftir að slökkviliðið hafði lokið þar störfum um hálffjögurleytið í nótt.

Ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum sem er í haldi lögreglu mun liggja fyrir síðar í dag.

Tilkynning um eldinn barst kl. 15.15 og hélt fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á staðinn, en aðstæður á vettvangi voru mjög erfiðar. Slökkvistarfið tók töluverðan tíma, en mikinn reyk lagði frá húsinu og voru íbúar í nágrenninu beðnir um að loka hjá sér gluggum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Furðar sig á þessu varðandi áfengisgjöldin – „Ísland er æ meira úr takti við önnur ríki“

Furðar sig á þessu varðandi áfengisgjöldin – „Ísland er æ meira úr takti við önnur ríki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrirspurn um stæði fyrir hreyfihamlaða við skólann hafnað

Fyrirspurn um stæði fyrir hreyfihamlaða við skólann hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sesselía leiðir nýtt svið hjá Högum

Sesselía leiðir nýtt svið hjá Högum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Díana í Pussy Riot orðin íslenskur ríkisborgari ásamt 35 öðrum

Díana í Pussy Riot orðin íslenskur ríkisborgari ásamt 35 öðrum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þorvaldur segir Dani kokhrausta: „Fílingurinn“ er sá að þennan leik eigi þeir að vinna

Þorvaldur segir Dani kokhrausta: „Fílingurinn“ er sá að þennan leik eigi þeir að vinna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs – Gos og brauðmeti hækkar skarpt

Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs – Gos og brauðmeti hækkar skarpt