fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Nýjar vendingar í Kastljóss-málinu – „Margir fara langt yfir strikið“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 17. nóvember 2020 09:11

Myndin er samsett Mynd af Helgu/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar, gagnrýndi í gærkvöldi framgöngu Einars Þorsteinssonar, fjölmiðlamanns, í Kastljósinu þar sem hann gekk hart að Má Kristjánssyni, yfirlækni sjúkdómalækninga á Landspítalanum, vegna skýrslu Landspítalans um hópsmitið á Landakoti.

Þó nokkrir voru ósammála Helgu Völu og sögðu Einar hreinlega hafa verið að sinna skyldu sinni sem fréttamaður sem væri að spyrja óþægilegra spurninga og krefjast svara.

Ver gagnrýnina

Helga Vala virðist þó standa við gagnrýnina ef marka má færslu hennar nú í morgunsárið.  Segir hún það athyglisvert að kalla gagnrýni á fjölmiðlamenn „opinbera aftöku.“

„Ég starfaði eitt sinn í fjölmiðlum. Þá fengum við iðulega yfir okkur gusur. Stundum voru gusurnar réttmætar, stundum ofboðslega ómálefnalegar. Þarna var stundum talað um að þegar fjölmiðlafólkið næði að láta hjartað slá í fólki hringinn í kringum borð valdsins þá hefðum við líklega stungið á einhverju kýli. En við urðum líka stundum sár og stundum hæstánægð með umfjöllunina.

Þegar gagnrýni á framgöngu fjölmiðlafólks í einstaka viðtali er kölluð “aftaka” verð ég ögn hugsi. Það er engum greiði gerður með því að slá slíkri skjaldborg um fjölmiðlafólk, hvorki fjölmiðlafólki né lýðræðinu. Þau, eins og við öll, hafa gott af umræðunni um störf sín. Orðaskiptin hafa vægast sagt verið hressandi en auðvitað leynist inn á milli fólk sem fer yfir strikið. Það þekkjum við sem störfum í stjórnmálum líka. Einar Þorsteinsson er reyndur fjölmiðlamaður og ég þykist vita að hann þolir umræðu um störf sín og hafi jafnvel gaman af.“

Segist vel þola gagnrýni

Einar sjálfur skrifar athugasemd við færsluna þar sem hann segist vel þola gagnrýni á sín störf, hins vegar telur hann það hlutverk sitt að verja eðlilega fréttamennsku:

„Ég þoli vel umræðu um störf mín og kveinka mér ekki. Ég tek þó takmarkaðan þátt í þessari umræðu en reyni að verja eðlilega fréttamennsku. Prófaðu að lesa kommentin við þessa “málefnalegu gagnrýni” og veltu fyrir þér hvort umræðan er uppbyggileg og skemmtileg aflestrar. Ábyrgðin liggur víða.“

Helga Vala svarar Einari og segist sammála honum að margir hafi gengið of langt í gagnrýninni:
„tek undir að margir fara langt yfir strikið – taldi mig þó ekki vera þar en það kann að vera rangt. Mögulega átti upphafsfærslan að vera lengri, miklu lengri með öllu því sem ég segi neðar. Kannski ég skrifi stutta grein.“
Særa fram tröll

Vísa þau Helga Vala og Einar þá efalaust í athugasemdir við færslu hennar frá því í gær þar sem ummælin voru mörg óvægin í garð Einars og þáttarins. En að sama bragði voru margir sem tóku þar upp hanskann fyrir Einar og bentu á að það sé hlutverk fjölmiðla að spyrja erfiðu spurninganna, sama hversu óþægilegt það kann að vera.

Einar bendir áfram á að upphafleg færsla Helgu Völu um viðtalið hafi verið upphrópun og hneykslun sem var til þess fallin að særa fram tröll.

„Upphaflegur status þinn er einföld upphrópun og hneikslun sem var einvörðungu fallin til að særa fram tröll. Sem hann gerði. Status sem fælir fjölmiðlamenn frá því að stunda gagnrýna fréttamennsku til að lenda ekki í hakkavélinni. En ég er með þykkan skráp. Kom mér bara á óvart að sjá þetta frá fyrrverandi fjölmiðlakonu. Það kemur líklega hratt móða á fréttagleraugun þegar maður situr á Alþingi.“
Helga bendir á að engin móða sé á hennar fréttagleraugum. Hún hafi gagnrýnt viðtalið út af Einar hafi leitað af sökudólgi í viðtalinu fyrir atviki sem er á ábyrgð stjórnvalda. Spítalinn hafi unnið óeigingjarnt starf í þessum faraldri og eigi þakkir fyrir en ekki fingurbendingar.
„Ég er til í að tala við þig hvenær sem er til að kynna þér allt það sem ég hef lært á síðustu mánuðum og misserum því það eru nokkrir hlutir sem blasa við að hægt er að fara í til að gera spítalann betur í stakk búinn til að takast á við hlutverk sitt. Hlutverk sem var ærið fyrir Covid 19 og er núna á köflum hættulegt og ómannúðlegt.“

Einar svarar: Þakka þann heiður að fá að bergja af þínum viskubrunni.“

En Helga túlkar það svar sem svo að Einar sé að hafna boði hennar.
 „ó… biðst afsökunar á boðinu. Það var augljóslega óþarfi“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu