fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stórundarleg brasksíða á Facebook í nafni Bjarkar Guðmundsdóttir – Fólki lofað peningum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 21. október 2020 19:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afar sérstæð Facebook-síða nefnd í höfuð tónlistarkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur var opnuð á Facebook í dag. Allur texti síðunnar er á stirðri og vélþýddri íslensku. Myndir af Björk eru á síðunni og spiluð myndbönd þar sem hún segir frá tónlist sinni.

Um 20 manns eru að fylgjast með síðunni þegar þetta er skrifað. Fólki er lofað nokkuð háum peningaupphæðum fyrir að taka þátt í leik sem virðist snúast um að skrifa bókstaf í ummælakerfi undir færslu. Þegar DV freistaði þess að senda fyrirspurn á síðuhaldara var honum svarað með yfirlýsingu um að viðkomandi hefði unnið 50 þúsund krónur í reiðufé. Til að fá vinninginn þyrfti að deila færslunni með 5-10 hópum á Facebook og gera einhverjar aðrar deilinga- og þátttökukúnstir.

DV bar síðuna undir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu sem kannast ekki við hana, en svaraði: „Það er full ástæða fyrir fólk að vara sig á netinu, margt er um svindlið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“