fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Valgerður segist hafa týnt sér eftir barnsburð : „Sjáðu hvað ég var alltaf glöð“

Öskubuska
Sunnudaginn 11. febrúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðan ég varð móðir hef ég svolítið týnt gömlu mér.. Jú það kannast örugglega margir við það að hafa ekki tíma í að sinna hlutum sem maður var vanur að hafa svo miklar áhyggjur af. Eins og til dæmis að finna hreinan bol, slétta yfir flókabunkann sem við köllum núna hár, jú eða lita augabrúnir. Ég get allavega sagt fyrir mitt leyti að ég er orðin ansi vön að arka um allt augabrúnalaus eins og ég hafi lent í hræðilegu grillslysi.

Sú sem þú sérð í speglinum núna er kannski með nokkur, eða fullt af slitum, hún er örugglega þreytulegri en venjulega og ábyggilega aðeins tuskulegri en þú átt að venjast. Maður horfir á myndir af sér fyrir barnsburð og hugsar „sjáðu hvað ég var alltaf glöð, ekki með bauga og smart klædd! Ég vildi óska að ég liti enn svona vel út.”

Margar horfa á sig í speglinum og sjá aðra manneskju!

En það sem ég er hér til að segja er að þú, eins og þú varst fyrir barnsburð, sú sem þú horfir á með glampa í augunum, þú ert þarna enn þá! Þó þú sért alltaf syfjuð, sjaldan tilhöfð og klædd í karteflusekk sem kallast „mömmubolur” þá ertu þarna enn…

Það getur tekið mánuði, jafnvel ár að verða aftur söm því við erum jú að móta manneskju, HEILA manneskju. Við erum þreyttar og þráum jafnvel ekkert heitar en að fá að setjast niður og sötra einn kaffibolla (eða kokteil!) frekar en að skipta á þessari myndarlegu kúkableyju sem barnið er að malla. Vertu bara þolinmóð, þetta kemur.

Engar áhyggjur ÞÚ kemur aftur.. eins og þú varst.. eða svona næstum. ÞÚ sem þú horfir á með söknuði þegar þú skoðar gamlar myndir er þarna enn. Þú þarft bara að finna hana. Það tekur tíma og jafnvel smá vinnu en það er allt í lagi. Það má.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið