

Líklega hafa allir þeir sem eiga hund staðið hann að því að vera að gera eitthvað sem hann má ekki. Um leið og hundarnir hafa áttað sig á því að eigandi þeirra hafi gripið þá við verknaðinn eru þeir fljótir að setja upp hvolpa augun svo erfitt sé að skamma þá.
Þeir eiga það þó flestir sameiginlegt að gera sér grein fyrir því að það sem þeir gerðu var ekki leyfilegt og skammast þeir sín því alveg hrikalega.
Bleikt tók saman nokkrar bráðfyndnar myndir af hundum sem gripnir voru glóðvolgir.

















