fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026

Myndband: Maggi Texas mætir til Höllu í Grindavík

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. október 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Ingi Magnússon, best þekktur sem Maggi í Texas borgurum, sér ekki bara um að flippa hamborgurum við misjafnar vinsældir. Hann sér líka um netþætti sem kallast Meistaraeldhúsið. Í nýjasta þættinum, í lok september, brá hann undir sig betri fætinum og kíkti til Grindavíkur á staðinn Hjá Höllu.

Halla María Sveinsdóttir hefur rekið staðinn Hjá Höllu í fimm ár, þar af tvö ár á núverandi stað að Víkurbraut 62, Grindavík. Halla María er ekki lærð í matreiðslunni, en hún og konurnar sem hjá henni starfa (karlmennirnir sjá um að keyra matinn út) gera allt af ástríðu og áhuga.

Heimilislegur matur eldaður af hjarta og sál

Daglega eru um 400 matarpakkar sendir út úr húsi til einstaklinga og fyrirtækja, bæði í Grindavík og til Reykjanesbæjar og Reykjavíkur, stærsta fyrirtækið er um 70 manna.

Hægt er að velja um súpu og salat í hverri viku, en matseðillinn breytist vikulega. Brauðin eru bökuð á staðnum, fyrir utan brauðin í samlokugerðina, sem bökuð eru í Hérastubbi bakara í Grindavík.

Grænmetisréttir, pizzur, vefjur, kjúklingaréttir og samlokur eru líka á matseðlinum.

Auk matarins eru kökur, vöfflur og kaffi í boði og eru kökurnar að sjálfsögðu bakaðar á staðnum.

Opið er frá kl. 8-17 virka daga og helgar kl. 11-17.
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Keyrði fullur og missir prófið í eitt ár

Keyrði fullur og missir prófið í eitt ár
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tvö ensk stórlið fylgjast með öflugum leikmanni PSG

Tvö ensk stórlið fylgjast með öflugum leikmanni PSG
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“

Gagnrýnir að rekni ráðherrann fái enn að búa í húsnæði landhelgisgæslunnar – „Noem þarf að pakka í tösku og fara“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.