fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Einstæð móðir flúði ofbeldisfullt samband og byggði hús frá grunni með hjálp YouTube myndbanda

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 17. janúar 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cara Brookins hefur ekki átt auðvelt líf og hefur þurft að glíma við erfiðar og hættulegar aðstæður með börnin sín fjögur. Fyrsta hjónabandið hennar endaði því eiginmaður hennar var með geðklofa og haldinn ofsóknaræði. Hún ákvað að skilja við hann til að vernda börnin því heimilisaðstæðurnar voru orðnar mjög hættulegar. Síðan kynntist hún öðrum manni sem var sterkur og lét henni líða eins og hún væri örugg. Nema sá maður var ekki allur eins og hann var séður.

Cara og börnin hennar fjögur.

Þegar það byrjaði að líða á sambandið fór hann að beita hana andlegu og líkamlegu ofbeldi. Cara ákvað að það væri kominn tími til að byrja aftur upp á nýtt. Hún ætlaði að finna nýtt heimili fyrir sig og börnin sín, en þá voru þau 17, 15 og 11 ára og sá yngsti var 18 mánaða gamall. Cara hafði í engin hús að venda og hafði aðeins efni á íbúð þar sem öll börnin þurftu að deila einu herbergi, tvö elstu börnin voru ekki spennt fyrir því. Þegar Cara og börnin hennar keyrðu framhjá húsi sem hafði skemmst mikið í hvirfilbyl sá hún grunnbyggingu hússins.

„Það er ekki mikið þarna, þetta lítur ekki svo flókið út,“

man hún eftir að hafa hugsað. Í viðtali við TheBlaze sagði Cara að byggja húsið frá grunni væri einskonar táknmynd fyrir hana þar sem hún væri líka að byggja líf sitt aftur upp frá grunni. Hún ákvað þar með að slá til, fór í bankann og fékk lán til að kaupa byggingarefni og land.

Cara Brookins.

Öll börnin voru spennt, sérstaklega spennt fyrir því að þurfa ekki að deila herbergi. Þau hjálpuðu móður sinni að byggja húsið og skiptust á að passa yngsta barnið. Á hverju kvöldi leitaði Cara leiðbeininga á Google og skoðaði myndbönd á YouTube um hvernig hún ætti að framkvæma verkefni næsta dags. Þetta var árið 2008 og á þeim tíma átti hún ekki snjallsíma heldur gamlan síma án internets og þurfti þess vegna að byggja út frá minni.

„Þetta snerist mikið um að spyrja spurninga, vera hógvær og vera tilbúin að líta út eins og bjáni. En þegar þú ert komin svona langt niður, hversu mikið neðar geturu í raun farið? Að vera komin svona langt niður gerir mann óttalausan, hverju hefur maður að tapa?“

Þetta stóra verkefni var ekki auðvelt, sérstaklega fyrir fjölskyldu með marga brotna einstaklinga. Cara rifjar upp þegar hún sneri baki í börnin sín til að þurrka tárin svo þau myndu ekki sjá hana gráta.

„Að sjá öll börnin horfa upp til mín með þessi stóru augu og brotnu hjörtu þá hugsaði ég að ég þyrfti að ná að gera þetta.“

Húsið sem fjölskyldan byggði. Þau búa enn í því núna átta árum síðar.

Fyrir utan rafmagn og pípulagnir þá byggði fjölskyldan húsið, sem þau búa enn í átta árum síðar, alveg sjálf. Cara skrifaði bók um reynsluna sína, Rise, How A House Built a Family, sem kemur út 24. janúar. Hún vonar að bókin geti hjálpað þeim sem eru í svipaðri stöðu og hún var í og verði þeim ákveðin hvatning.

„Þetta varð leið fyrir mig til að eigna mér mína sögu,“

sagði Cara. Hún var einnig með ráð til þeirra sem eru í ofbeldisfullu sambandi.

„Fólki er sagt að taka lítil skref. Ef þú tekur bara lítil skref þá er það eina sem þú afrekar. Settu þér klikkað og stórt markmið, gerðu eitthvað sem lítur út fyrir að vera ómögulegt og það mun breyta því hvernig þú horfir á þig sjálfa. Fyrir okkur var það að byggja hús.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United