

Magnús Máni 7 ára strákur sem dýrkar Zlatan Ibrahimovic og Hannes Þór Halldórsson. Eins og margir krakkar safnar hann fótboltaspjöldunum sem oft er hægt að næla sér í við kassana í matvöruverslunum.

Að sögn Öldu Hrannar Magnúsdóttur, mömmu Magnúsar Mána, er hann góðhjartaður vill allt fyrir alla gera og er tilbúinn til að leysa öll þau mál sem leysa þarf.
„Hann gerir allt í sínu valdi til að aðstoða þá sem minna mega sín sem og þá sem eru minni og yngri en hann sjálfur. Hann er litla ofurhetjan mín,“
segir Alda.
Í gær var Magnús Máni staddur í Bónus með mömmu sinni og varð fyrir óvæntri og skemmtilegri reynslu. Alda Hrönn ritaði á Facebook síðu sína frásögn af atvikinu:Hér sit ég með einn 7 ára gamlan sem segist ekki trúa því að fólk geti verið svona gott. – Fyrr í dag fórum við að versla í Bónus, þar skoðar minn fótboltamyndirnar á kassanum með stjörnurnar í augunum (eins og í hverri búðarferð). Það er maður á undan okkur á kassanum sem kaupir einn pakka, og eftir að hafa klárað að borga og koma vörunum sínum í poka ýtir hann aðeins við Magnúsi og segir honum að þetta sé happadagurinn hans og með því sama afhendir hann honum pakka af fótboltaspjöldum. Enn situr hann hér, segir þetta besta dag í heimi með heimsins stærstu stjörnur í augum og trúir ekki að fólk sé svona gott ❤ Það þarf ekki mikið til að gleðja lítil hjörtu og já það er líka alveg rétt hjá honum, það er til mikið af yndislegu fólki þarna úti sem geta glatt lítil hjörtu með litlu.
Alda Hrönn segir að Magnús Máni sjái ekki sólina fyrir elskulegu fótboltaspjöldunum.

„Honum finnst markvarslan við fótboltann lang áhugaverðust og langar honum að verða eins og Hannes okkar Íslendinga þegar hann verður stór.“
