fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Halldór Blöndal missti móður sína ungur: „Hún átti fimm börn og það yngsta barnungt sem var mjög sárt“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 14. júlí 2018 09:00

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Blöndal var lengi vel einn af mest áberandi stjórnmálamönnum landsins. Hann var landbúnaðar- og samgönguráðherra í fjögur ár, síðan samgönguráðherra í önnur fjögur ár og þingforseti í sex. Hann var þekktur fyrir sitt alþýðlega fas, hagmælsku en gat einnig verið beittur þegar á þurfti að halda. Kristinn ræddi við Halldór um uppvaxtarárin, árin í hvalstöðinni, stjórnmálin og hvað hann hefur verið að bralla síðan þingmennskunni lauk.

Þetta er brot úr stóru viðtali í helgarblaði DV

 

Halldór er af hinni þekktu Engeyingaætt í móðurlegg. Móðir hans var Kristjana Benediktsdóttir, systir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í Viðreisnarstjórninni. Faðir hans var Lárus H. Blöndal, lengi bókavörður í Landsbókasafninu. Halldór var fæddur og alinn upp í Reykjavík á Laugavegi 66 sem var eitt af óðulum Engeyinga eftir að þeir fluttu í land.

„Þann 6. apríl árið 1906 strandaði þilskipið Ingvar á grynningunum milli Viðeyjar og Laugarness í ofsaveðri og 20 manns létust. Tyrfingur sem stýrði bátnum var bróðir Bjarna Magnússonar sem ég kallaði afa minn afa. Hann var seinni maður langömmu minnar Ragnhildar Ólafsdóttur.Slysið hafði mikil áhrif á Engeyinga svo að þeir undu ekki í eynni en fluttu í land og keyptu bæði Laugaveg 18 og 66. Þar var ég alinn upp í þeim fjölskyldugarði sem þar var.“

Þetta var mikið menningarheimili og íslenskuheimili og ekki að furða að Halldór sé hagyrðingur. Lárus var mikill íslenskumaður og hlaut meðal annars fálkaorðuna fyrir störf sín og móðurafi Halldórs, Benedikt Sveinsson, gaf út Íslendingasögurnar.

Halldór segist sjálfsagt hafa verið ágætisdrengur en ekki var hann hneigður til skólagöngu.

„Þegar ég fór í menntaskólann þá féll ég í þriðja bekk hér syðra. Móðir mín hafði dáið þá um veturinn, en amma mín, Guðrún Pétursdóttir, taldi að Þórarinn Björnsson skólameistari á Akureyri gæti komið mér til manns. Þess vegna var ég sendur norður.“

Það hefur verið mikið áfall fyrir ungan dreng?

„Já, þú getur rétt ímyndað þér“ segir Halldór. „Það er auðvitað mikið áfall að missa móður sína, það þarf ekkert að ræða það. Hún átti fimm börn og það yngsta barnungt sem var mjög sárt. Móðir mín var lengi veik af krabbameini. Það var tekið af henni brjóstið og okkur var gefin von um að það hefði komist fyrir krabbann en síðan tók hann sig upp aftur og þá réðst ekki neitt við neitt.“

Hafði þetta áhrif á þína skólagöngu?

„Ég ætla nú ekkert að kenna því um, ég bara stóð mig ekki nógu vel. Ég var nú ungur en fékk mér í staupinu, lærði ekki og var að spekúlera í öðrum hlutum. En ég var ekkert að hugsa um hvað ég vildi verða í framtíðinni.“

Námsárangurinn batnaði ekki fyrir norðan en hann minnist þeirra ára hins vegar með hlýju. Þar kynntist hann góðum vinum og Renötu Kristjánsdóttur, fyrri eiginkonu sinni,sem hann eignaðist tvær dætur, Ragnhildi og Kristjönu Stellu, með en þau skildu árið 1967. Árið 1969 giftist Halldór Kristrúnu Eymundsdóttur menntaskólakennara og eiga þau soninn Pétur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Í gær

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 2 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“