Fókus

Bókaröð Lilju verður að sjónvarpsþáttum

Mynd

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver og þýska félagið Network Movie, dótturfélag þýska almannaþjónustusjónvarpsins ZDF, hafa keypt réttinn að fimm bókum Lilju Sigurðardóttur um Áróru: Helköld sól, Blóðrauður sjór, Náhvít jörð, Drepsvart hraun og Dauðadjúp sprunga.

Variety greinir frá því undirbúningur er hafinn að sjónvarpsþáttum.

„Þá eru nú Árórubækurnar mínar komnar í öruggar hendur og ég hlakka til að sjá hvernig þær munu koma út úr alþjóðlegri framleiðslu,“ sagði Lilja á Facebook. 

Þættirnir gerast á Íslandi og í London og fylgja eftir Áróru, harðsnúnum rannsakanda fjársvikamála með íslenskar rætur, sem snýr heim til að leita að týndri systur sinni. Það sem byrjar sem fjölskylduleit þróast fljótt í umfangsmeiri sakamálarannsókn þegar hún tekur höndum saman við Daniel, íslenskan lögreglumann sem gæti orðið meira en bara samstarfsfélagi; saman afhjúpa þau spillingu, svik og ofbeldi undir yfirborði íslenskrar náttúru.

„Við erum afar ánægð með samstarfið við Network Movie um að færa Áróru af pappírnum og yfir á skjáinn,“ sagði Andri Ómarsson, forstjóri Glassriver. „Þetta er sannkallað alþjóðlegt verkefni þar sem sagan spannar bæði Ísland og Bretland, og leiðir saman hæfileikafólk víðs vegar að úr Evrópu.“

Jakob segir Lilju búa yfir hæfileikum til að sameina „heillandi persónur, spennu og sterka staðbundna stemningu“ sem veiti Áróru „einstakt alþjóðlegt aðdráttarafl.“

Bernd von Fehrn, framkvæmdastjóri Network Movie, og Moritz Mihm, framleiðslustjóri, lýstu persónunni Áróru sem „ómótstæðilegri kvenhetju“ og lofaði bækurnar fyrir að „flétta saman flóknum sakamálum og margslungnu einkalífi aðalpersónunnar og fjölskyldu hennar.“ „Bækurnar eru kjörið efni til kvikmyndunar,“ segir hann. „Við erum afar ánægð með að hafa fundið hinn fullkomna samstarfsaðila fyrir þetta sérstaka verkefni í teymi Glassriver.“

Áður hafði verið samið um gerð sjónvarpsþátta sem byggja á þríleik Lilju: Gildrunni, Netinu og Búrinu, þar sem söguhetjan er Sonja.

Bækurnar um Áróru hafa selst í meira en 800.000 eintökum og hafa tryggt sér útgáfusamninga á ensku, frönsku, þýsku og arabísku, sem og í Svíþjóð, Finnlandi og Eistlandi.