Fókus

Hjartaknúsarinn skrifar opið bréf til sjúkdómsins sem breytti lífi hans

Mynd
Nick Jonas og eiginkona hans, Priyanka Chopra/Getty

Hjartaknúsarinn Nick Jonas, úr drengjasveitinni The Jonas Brothers, var aðeins 13 ára gamall þegar líf hans breyttist til frambúðar en þá greindist hann með meðfædda sykursýki. Hann hefur frá þeim degi notað insúlíndælu til að meðhöndla sjúkdóminn en hann lætur ekki þar við sitja. Hann hefur komið á fót sérstökum sjóði sem er ætlað að auka vitund um sykursýki og styðja við þá sem við sjúkdóminn glíma. Eins hefur hann verið sérstakur erindreki samtakanna Bayer Diabetes Care frá árinu 2008 til að hvetja ungt fólk til að halda sykursýki sinni í skefjum. Eins hefur hann komið fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings til að hvetja stjórnvöld til að hækka fjárveitingar til rannsókna.

Alþjóðlegur dagur sykursýkinnar er haldinn 14. nóvember og í Bandaríkjunum er nóvembermánuður helgaður vitundarvakningu um sjúkdóminn. Af því tilefni hefur söngvarinn birt opið bréf þar sem hann ávarpar sykursýki sína.

„Sæll gamli vinur. Það er fyndið hversu oft við tölum saman,“ skrifar Nick og nefnir að sjúkdómurinn sé aldrei langt undan. Hann þarf að fylgjast vel með blóðsykri sínum og ætli hann að borða kolvetnaríka máltíð þá þarf hann að eiga við insúlíndæluna til að hækka skammtinn sinn. Þó að samskiptin við sjúkdóminn séu ekki umfangsmikil þá eru þau tíð.

„Fæstir taka eftir þeim. En saman mynda þetta raunverulegt samband, því þannig er sykursýkin. Hún er stöðugt samtal milli líkama þíns, hugar og tækja.“

Nick var unglingur þegar hann greindist og átti þá mjög erfitt með það hversu óútreiknanlegur sjúkdómurinn er.

„Ég hafði byggt heimsmyndina mína á óraunhæfum grunni og þeirri trú að ég hefði stjórnina. Þú hlutaðir þá heimsmynd niður með árunum, bita fyrir bita. Ákveðinn hluti af mér er þakklátur fyrir þá lexíu en annar hluti af mér fyrirlítur þig fyrir það. Punktur. Það koma dagar þar sem ég velti því fyrir mér hvernig lífið mitt væri án þín.“

Hann nefnir svo jákvæða afleiðingu sykursýkinnar sem kom honum á óvart. Sem unglingur hafi hann upplifað sig utangarðs. Honum fannst hann ekki tilheyra neinu. Svo kom greiningin en þá fór Nick að kynnast öðrum með sykursýki og fann sitt samfélag.

Söngvarinn segist ekki líta á sig sem fórnarlamb. Hann er ekki að deila sögu sinni til að fá vorkunn heldur í von um að ná eyrum unglings sem er kannski nýgreindur með sykursýki og óttast að lífið sé búið áður en það fær einu sinni að hefjast. Þessi unglingur getur séð Nick og hvernig hann hefur ekki látið sykursýkina stöðva sig.

„Þannig ég þakka þér, gamli vinur, fyrir lexíurnar sem ég kærði mig aldrei um. Ég mun halda áfram að deila sögu minni og draga ekkert undan, svo einhver þarna úti upplifi sig ekki einan á báti.“

Söngvarinn hefur áður lýst því hvaða einkenni urðu til þess að hann greindist. Hann sagði í hlaðvarpinu Podcrushed á síðasta ári:

„Ég fór að léttast gríðarlega, drekka ótrúlega mikið vatn og var alltaf á klósettinu, öll þessi einkenni sem ég veit í dag að eru einkenni af sykursýki-1. Ég hafði ekki hugmynd. Ég vissi bara að mér leið illa og var að léttast mikið. Þetta er í raun vottur þess hvað vitund var lítil á þessum tíma og upplýstingar um sykursýki-1 fábrotnar.“