fbpx
Miðvikudagur 11.febrúar 2026
Fókus

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 11. desember 2025 18:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um að oft erum við ekki að setja öðrum mörk og við þannig yfirfull af manneskjugeðjun.

„Stundum höldum við að við séum meganæs en erum í raun marineruð í manneskjugeðjun.

Þegar við setum ekki mörk til að hlífa öðrum við óþægilegri stemningu erum við að svíkja okkur sjálf. Í hvert skipti sem við setjum ekki mörk molna litlar mylsnur af sjálfsmyndinni.

Við sendum með því skilaboð til sjálfsins að okkar tilfinningar, þarfir, langanir skipta ekki máli.

Gaslýsum okkur út úr mörkum að við séum örugglega að bregðast of harkalega við. Séum alltof viðkvæm. Of mikið snjókorn. Því oftar en ekki er það söguskýringin sem við höfum fengið að heyra í gegnum tíðina þegar við höfum sett mörk. Eða að við séum svo erfið og hörð. Það er ódýr og þægileg útskýring fyrir krumpað fólk með rassakláða að staðföst, heilsteypt manneskja láti ekki bjóða sér eitraða hegðun.“

Segir Ragga að erfiða manneskjan í fjölskyldunni er oft sú sem setur skýr mörk og lætur ekki bjóða sér vanvirðingu.

„Hefur skrúbbað af sér manneskjugeðjun með bleikiefni og klór.

Teflonhúðað sig fyrir klækjabrögðum til stjórnunar.

Skapað fjarlægð við fólk sem sýnir endurtekna vanvirðingu og frekju.

Lætur ekki stýra sér með alls konar klækjabrögðum

Ekki samviskubitsvæða sig í að gera hluti sem engin orka, löngun eða tími er fyrir.

Nennir ekki lengur að læðast á sokkaleistunum á eggjaskurnum í kringum fýlustjórnun.

Komin með uppí kok að „halda friðinn“.“

Mynd: Ragga nagli

Ragga ráðleggur okkur að vera ERFIÐA“ týpan og bera þá nafngift með stolti.

„Mörk eru ekki lok lok og læs og allt í stáli og endalok sambands.

Mörk eru leiðbeiningar um hvernig þú upplifir öryggi og getur átt farsælt og gott samband.

Mörk eyðileggja bara sambönd byggð á sandi því það fólk hagnaðist á markaleysi þínu.

Tilfinningalegur þroski er að virða mörkin þín og þannig fólk viltu í kringum þig.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ

Einbýlishús með leynisundlaug til sölu í Mosfellsbæ
Fókus
Í gær

Kynda undir sögusagnirnar með kvöldverði

Kynda undir sögusagnirnar með kvöldverði
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sauð á Trump yfir hálfleikssýningu Super Bowl: „Blaut tuska“ í andlit Bandaríkjanna

Sauð á Trump yfir hálfleikssýningu Super Bowl: „Blaut tuska“ í andlit Bandaríkjanna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bergþór brattur þrátt fyrir sögulegt hrun Bitcoin – Telur að það séu 20 ár í lúxuseignir, einkakokk og ofurfyrirsætur

Bergþór brattur þrátt fyrir sögulegt hrun Bitcoin – Telur að það séu 20 ár í lúxuseignir, einkakokk og ofurfyrirsætur
Fókus
Fyrir 1 viku

Billie Eilish sökuð um hræsni eftir þakkarræðu sína – „Enginn er ólöglegur á stolnu landi“

Billie Eilish sökuð um hræsni eftir þakkarræðu sína – „Enginn er ólöglegur á stolnu landi“
Fókus
Fyrir 1 viku

Byrjaði á þyngdarstjórnunarlyfjum en bjóst aldrei við þessu – Mittismálið minnkaði en annað fór að stækka

Byrjaði á þyngdarstjórnunarlyfjum en bjóst aldrei við þessu – Mittismálið minnkaði en annað fór að stækka
Fókus
Fyrir 1 viku

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni
Fókus
Fyrir 1 viku

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu