fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Lítt þekkt ættartengsl – Borgarfulltrúinn og hjólahvíslarinn

Fókus
Þriðjudaginn 4. mars 2025 16:30

Sanna Magdalena Mörtudóttir og Bjartmar Leósson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru eflaust margir sem gera sér ekki grein fyrir að Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Sósíalistaflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur og hinn svokallaði hjólahvíslari Bjartmar Leósson eru náskyld en Bjartmar er yngri bróðir móður Sönnu.

Í Facebook-færslu rifjar Sanna upp það sem varð til þess að hún gekk til liðs við Sósíalistaflokkinn en það var glíma hennar sjálfrar og móður hennar við fátækt. Af því tilefni birtir hún með færslunni gamlar myndir, frá því að hún var barn, af þeim mæðgum við Reykjavíkurtjörn. Sanna skrifar:

„Lífsreynslan mun vonandi koma að góðum notum í starfi mínu sem nýkjörinn formaður velferðarráðs en á meðfylgjandi myndum er ég sennilega átta ára, við mæðgur nýkomnar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði. Á þeim tíma þurfti þriggja ára búsetu í sveitarfélaginu til að mega sækja um húsnæði en það var hægt að sækja um að vera undanþeginn því. Síðan þá hafa reglur breyst. Ég mun nýta þá rúma fjórtán mánuði sem eftir eru af kjörtímabilinu eins vel og hægt er og gera mitt besta til að breyta því sem þarf að breyta og laga það sem þarf að laga. Ég þakka traustið sem mér hefur verið sýnt og mun vanda mig eins vel og ég get við að vera forseti borgarstjórnar.“

En þær mæðgur eru ekki einar á myndunum en þar má einnig sjá yngri bróður móður Sönnu, Mörtu Leósdóttur, Bjartmar Leósson.

Á myndunum má sjá Bjartmar með reiðhjólahjálm á höfði og sjá má að reiðhjólið er ekki langt undan. Síðar meir átti Bjartmar eftir að öðlast landsfrægð fyrir þrotlausa vinnu sína við að endurheimta reiðhjól og annars konar muni sem hefur verið stolið. Fyrir þetta hlaut hann eins og margir eflaust vita viðurnefnið hjólahvíslarinn og raunar hefur frægð þessa frænda Sönnu borist út fyrir landsteinana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur