Sópransöngkonan Hlín Leifsdóttir hefur nýlokið tónleikaferð til Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í ferðinni frumflutti Hlín m.a. sönglög eftir gríska tónskáldið Panagiotis Karousos við ljóð palestínska skáldsins Olivíu Elias og við eigið ljóð, við undirleik Benjamins Chatzikoumparoglou. Auk ýmissa sígildra óperuverka söng Hlín nýleg verk eftir Karousos. Tónleikaferðin var skipulögð í samvinnu við UNESCO og heimamenn í Dubai og var gerður mjög góður rómur að söng Hlínar og píanóleik Benjamíns.
Þann 29. maí verður frumsýning á grísku óperunni Prómoþeusi eftir Karousos í leikhúsinu No í Aþenu. Fer Hlín með eitt fjögurra burðarhlutverka í óperunni en í henni segir frá Prómoþeusi sem færði mannkyni eldinn sem gerði mönnunum kleift að stunda málmsmíði. Að launum lét Seifur hlekkja Prómoþeus við klettavegg þar sem honum biðu raunaleg ævilok.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur hefur verið í för með Hildi til Dubai og segir hann flutning hennar hafa vakið mikla hrifningu og tilfinningaviðbrögð. „Það var gaman að sjá menn tárast yfir söngnum og stökkva svo til að biðja um eiginhandaráritun, ég náði einni mynd af því. Hlín söng m.a.á listahátíð á vegum Sultönu Kazim, sem er við hirðina og er sérstakur verndari lista í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá hélt hún tónleika í Bahi Ajman Palace í Dubai.“