fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Nýtt sjónarhorn af uppákomunni í London í gær vekur gríðarlega athygli – Sjáðu myndbandið

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband frá nýju sjónarhorni af atvikinu sem leiddi til þess að jöfnunarmark West Ham var dæmt af gegn Arsenal hefur vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna fyrrnefnda liðsins.

Arsenal vann leikinn 0-1 eftir mark Leandro Trossard, en West Ham taldi sig hafa jafnað í uppbótartíma þegar Callum Wilson skoraði. Markið var hins vegar dæmt af eftir skoðun í VAR vegna brots á markverðinum David Raya.

Eftir að myndband fór í dreifingu frá nýju sjónarhorni telja stuðningsmenn West Ham að brotið hafi verið á leikmönnum þeirra í teignum í aðdraganda marksins einnig, þar á meðal, Jean-Clair Todibo og Konstantinos Mavropanos.

Nuno Espirito Santo, stjóri West Ham, gagnrýndi dómara á Englandi fyrir ósamræmi í dómgæslu eftir leik.

„Það skapar rugling og pirring. Þetta gerist á öllum völlum, ekki bara hér,“ sagði hann.

Myndband af atvikinu úr nýju sjónarhorni er hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt