fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Vinstri græn eru til í slaginn fylgislaus, peningalaus, valdalaus og húsnæðislaus

Eyjan
Mánudaginn 26. maí 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, sem tók við formennsku í flokki Vinstri grænna og fór með hann fram af brún fylgis í síðustu kosningum, hefur nú tekið til máls eftir langt hlé. Flokkurinn naut stuðnings 2,3 prósenta kjósenda sem merkir að VG fékk engan mann kjörinn á Alþingi og naut ekki einu sinni styrkja frá ríkinu vegna þess að ná þarf 2,5 prósenta fylgi til að ríkið borgi. Flokkurinn er því fylgislaus, valdalaus og peningalaus. Í kjölfar þessa sagði flokkurinn upp húsnæðisaðstöðu sinni enda engir sjóðir tiltækir til að greiða húsaleigu fyrir Vinstri græna.

Orðið á götunni er að það sé vægast sagt kjánalegt eða jafnvel grátlegt að Svandís stigi nú fram og segi eins og ekkert hafi í skorist: … „flokkurinn er hvergi af baki dottinn“ … Einmitt. Hve mikið þarf að detta af baki til að vera af baki dottinn? Flestir átta sig á því að hér eru á ferðinni vandræðalegur kippir sem engu munu breyta.

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG, sagði um helgina að hún væri ekki viss um hvort flokkur hennar byði fram eða ekki. Svandís er að bregðast við þessu. Rís upp úr hýði sínu og tilkynnir að flokkurinn sé hvergi af baki dottinn þótt hann liggi flatur í miðri reiðgötunni. Engar skoðanakannanir hafa sýnt að eftirspurn eftir VG hafi aukist eftir afhroðið í kosningunum 30. nóvember sl. Svandís er enn formaður og reynir nú að bregðast við.

Orðið á götunni er að það gætu jafnvel hafa opnast möguleikar um helgina þegar Gunnar Smári var felldur úr forystu Sósíalistaflokks Íslands á að sameina krafta hinna mjög svo vinstri sinnuðu og illa stöddu á Íslandi. VG og sá flokkur gætu átt samleið eftir að Gunnar Smári hverfur af vettvangi en þá þarf Svandís einnig að víkja.

Ekki er víst að Líf Magneudóttur líki slíkt samkrull. Ef hún stendur sig vel í samstarfi núverandi valdaflokka í Reykjavíkurborg þá gæti það gerst að hún gengi í Samfylkinguna og tæki sæti á lista þeirra að ári.

Eini sterki stjórnmálamaðurinn í Sósíalistaflokki Íslands, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi, var ekki sátt við niðurstöðu hjaðningavíganna í flokki hennar um helgina og hefur sagt sig frá embættum innan flokksins. Hún gegnir þó áfram mikilvægum störfum sínum í Borgarstjórn Reykjavíkur þar sem hún nýtur mikilla persónulegra vinsælda. Hún er sterkur stjórnmálamaður og til alls vís.

Orðið á götunni er að hörmungar vinstri vængsins í íslenskum stjórnmálum taki seint enda. Þar rís ekkert upp úr nema persóna Sönnu Magdalenu Mörtudóttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristrún Frostadóttir: Evrópusambandið gefur meira eftir en við – fiskveiðar ekki risamál í sambandinu

Kristrún Frostadóttir: Evrópusambandið gefur meira eftir en við – fiskveiðar ekki risamál í sambandinu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Eðlilegt að sigurvegararnir svari kalli kjósenda – ótraust fyrir Hildi að sitja í skjóli Einars

Orðið á götunni: Eðlilegt að sigurvegararnir svari kalli kjósenda – ótraust fyrir Hildi að sitja í skjóli Einars
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: 240 milljóna hjónin

Svarthöfði skrifar: 240 milljóna hjónin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út?

Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ómerkileg pólitík á lokaspretti – Hildur hefur gefið upp boltann – kallar eftir viðbrögðum

Orðið á götunni: Ómerkileg pólitík á lokaspretti – Hildur hefur gefið upp boltann – kallar eftir viðbrögðum