fbpx
Miðvikudagur 15.janúar 2025
Eyjan

Þorsteinn Pálsson: Samskiptin við Bandaríkin lík samskiptum við alræðisríki

Eyjan
Fimmtudaginn 9. janúar 2025 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland og önnur Evrópuríki verða áfram háð Bandaríkjunum á sviði viðskipta og varna en eftir valdatöku Trumps verðandi Bandaríkjaforseta verða samskiptin við þau líkari samskiptum við alræðisríki en lýðræðisríki. Þetta kallar á að Ísland styrki stöðu sína innan bæði Nató og ESB.

Boðskapur Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, er að héðan í frá gildi efnahagslegir og hernaðarlegir yfirburðir í samskiptum við önnur ríki; með öðrum orðum gengur lögmál frumskógarins fyrir stofnanalegri umgjörð alþjóðlegrar samvinnu um varnir og viðskipti.

Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra, skrifar af kögunarhóli á Eyjunni að með valdatöku Trumps stefni í að nú standi vestræn gildi gegn frumskógarlögmálinu. Tilefni skrifanna eru yfirlýsingar Trumps um að hann vilji fá Grænland undir bandarísk yfirráð og muni beita efnahagslegum þvingunum gegn Danmörku, Nató ríki, ef þurfi og útiloki ekki beitingu hervalds.

Þorsteinn segir mikil áhrif alþjóðlegra stórfyrirtækja, sem mörg hver hafi ríkari völd en flest þjóðríki, geri myndina enn flóknari.

Samvinna þjóðríkja er eina leið þeirra til að verja lýðræðið. Það hefur Evrópusambandið til að mynda gert með samræmdum aðgerðum í loftslagsmálum, með því að verja neytendur gegn einokun og einstaklinga gegn ógnum við persónulega friðhelgi.

Þetta eru verkefni sem jafnvel stærstu ríki Evrópu ráða ekki við ein síns liðs.“

Þorsteinn segir flækjustigið í hefðbundnum samskiptum þjóðríkja hafa vaxið mjög eftir að ákveðið var að blanda hagsmunum Elons Musks, ríkasta manns í heimi, og alþjóðlegu fyrirtækjaveldi hans inn í æðstu stjórn Bandaríkjanna.

Hann segir Trump boða tollastríð gegn Kína, Mexíkó og Kanada, hafa fullveldi Kanada í flimtingum og sækjast fast eftir yfirráðum í Grænlandi. Þá hóti hann tollastríði við Evrópu og reyni að sundra samstöðu Evrópu um vestræn gildi.

Musk beitir ólýðræðislegum stórveldisáhrifum og lýðræðislegu valdi sem hluti af stjórnkerfi Bandaríkjanna til að hafa áhrif á innanríkismál í ýmsum Evrópuríkjum. Hann vill ráða því hver er kanslari Þýskalands og hver gegnir stöðu forsætisráðherra Stóra-Bretlands.

Pútín hefur sínar aðferðir til að hafa áhrif á kosningar í lýðræðisríkjum. Musk gerir það sama.

Pútín vill ná yfirráðum í Úkraínu með hervaldi. Trump vill kaupa yfirráð í Grænlandi með peningum. Gjörólík aðferðarfræði. En að baki býr sams konar virðing fyrir sjálfsákvörðunarrétti minni þjóða.“

Þorsteinn segir klípuna felast í því að kjörinn forseti Bandaríkjanna deili ekki pólitískum, , menningarlegum og siðferðilegum gildum með þorra Evrópuríkja. Mismunandi tilbrigði af „Ameríka fyrst“ stefnunni hafi svo skotið rótum víða í Evrópu.

Hann segir veruleikann vera þann að Evrópa er og verði háð Bandaríkjunum bæði á sviðum viðskipta og varna. Samskiptin við þau verði því áfram mikilvæg fyrir Ísland og önnur norræn og evrópsk ríki. Þverstæðan sé hins vegar sú að þau verði líkari samskiptum við alræðisríki.

Þorsteinn segir innbyrðis reipdrátt í lýðræðisríkjunum og milli þeirra gera það að verkum að styrkur hornsteina vestrænna gilda, Nató og ESB, sé minni en áður.

Viðbrögðin eiga ekki að felast í vantrú á þessi bandalög. Þvert á móti er mikilvægt að styrkja stöðu okkar innan þeirra beggja.

Norðurlönd og norræn gildi eru sterkari innan Atlantshafsbandalagsins eftir inngöngu Svía og Finna. Þau yrðu á sama hátt sterkari innan Evrópusambandsins ef Norðmenn og Íslendingar gerðust fullgildir aðilar.

Aðstæður hafa breyst. Það kallar á ný viðbrögð. Norðurlönd þurfa að sameina krafta sína í stærra samhengi í varðstöðu um norræn og vestræn gildi, frjáls viðskipti og frelsi einstaklinganna.“

Hægt er að lesa pistli Þorsteins í heild hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nýir leiðtogar munu spreyta sig fyrir næstu borgarstjórnarkosningar – alger uppstokkun í aðsigi

Orðið á götunni: Nýir leiðtogar munu spreyta sig fyrir næstu borgarstjórnarkosningar – alger uppstokkun í aðsigi
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Þrengslin í bænum

Óttar Guðmundsson skrifar: Þrengslin í bænum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir að Kristrún ætli ekki að láta neinn vafa leika á því hvernig hún metur Dag B. Eggertsson

Segir að Kristrún ætli ekki að láta neinn vafa leika á því hvernig hún metur Dag B. Eggertsson
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Vesturlönd hafa gert mistök í samskiptum sínum við Úkraínu

Segir Vesturlönd hafa gert mistök í samskiptum sínum við Úkraínu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitísk aflögun í íslenskum landsmálum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitísk aflögun í íslenskum landsmálum