

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er gestur nýjasta þáttar hlaðvarpsins Ein pæling. Í þættinum fer Arnar Þór yfir helstu áherslur framboðs síns en eins og áður hefur komið fram telur Arnar að forseti Íslands verði að veita Alþingi og ríkisstjórn aukið aðhald. Arnar gagnrýnir í viðtalinu störf alþingismanna og segir þá orðna í auknum mæli viljalaust verkfæri í höndum embættismanna. Hann heldur því meðal annars fram í viðtalinu að þingmenn lesi ekki öll lagafrumvörp sem samþykkt eru á þinginu en Arnar hefur sjálfur tekið sæti á Alþingi sem varaþingmaður:
„Ég segi það bara hafandi setið þarna sjálfur. Ég hef séð nógu mikið af starfi Alþingis til þess að átta mig á því að yfirgnæfandi hluti stjórnmálamannanna, þingmannanna okkar, les ekki öll þau lagafrumvörp sem eru að streyma gegnum þingið.“
„Þetta er í rauninni þannig … að það er verið að kaffæra fólk í pappírsstormi. Við sjáum ekki handa okkar skil. Að sumu leyti er þingmönnum vorkunn að öðru leyti er þetta býsna alvarlegt að þeir í raun og veru sinni ekki þessu hlutverki sem þeir eru kosnir til að sinna. Þetta þýðir bara á mannamáli að lög og lagareglur streyma þarna í gegn án þess í rauninni að menn fái rönd við reist.“
Arnar Þór segir að hann vilji nýta forsetaembættið til að sporna gegn þessari þróun. Hann vilji að forsetinn eyði minni tíma í „puntathafnir“ og verðlaunaafhendingar.
Hann segist sjá fyrir sér að hann myndi sem forseti setja sig vel inn í öll þau frumvörp sem liggja fyrir Alþingi.
„Með því að lesa það sem er á leiðinni inn á borð til mín og vinna ákveðna grunnvinnu væri ég að gera meira heldur en því miður yfirgnæfandi meirihluti okkar þingmanna með fullri virðingu fyrir þeim. Ég er ekki að segja neitt ljótt. Ég er að segja bara að þetta er staðreynd eins og sé þetta.“