fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alvaro Morata, fyrrum fyrirliði spænska landsliðsins, virðist ekki vera í áætlunum Luis de la Fuente fyrir Heimsmeistaramótið í sumar samkvæmt spænskum miðlum.

Morata, sem leiddi Spán til sigurs á Evrópumótinu árið 2024, hefur samkvæmt Diario AS verið skilinn út undan í 55 manna bráðabirgðahópi landsliðsins fyrir HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Framherjinn er nú á láni hjá Como á Ítalíu frá AC Milan.

Þetta kemur mörgum á óvart enda hefur Morata verið lykilmaður í spænska landsliðinu undanfarin ár. Hann missti þó af úrslitaleik Evrópumótsins gegn Englandi vegna meiðsla sem hann varð fyrir í undanúrslitunum gegn Frakklandi.

Samkvæmt sömu heimild verður Dani Carvajal, bakvörður Real Madrid og fyrrum varafyrirliði liðsins, einnig skilinn eftir heima. Þá á Jesús Navas heldur ekki að vera í hópnum.

Luis de la Fuente sendi FIFA 55 manna bráðabirgðahóp á mánudag en sá hópur verður síðar minnkaður niður í 26 leikmenn fyrir lokahóp mótsins.

De la Fuente stefnir á að endurtaka afrek Vicente del Bosque sem vann bæði Evrópumótið og heimsmeistaramótið með Spáni á sínum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið