fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Sakar Jamie Carragher um vanvirðingu – Ætlar að kveðja á góðum nótum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Casemiro hefur svarað harðri gagnrýni Jamie Carragher frá síðasta tímabili og segir ummæli fyrrum varnarmanns Liverpool hafa verið óvirðing gagnvart sér.

Brasilíski miðjumaðurinn mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar og þar með lýkur fjögurra ára dvöl hans á Old Trafford. Þrátt fyrir að hafa átt stóran þátt í að tryggja United sæti í Meistaradeildinni á ný var hann harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína undir lok tímabilsins 2023-24.

Carragher lét meðal annars þau orð falla eftir 4-0 tap Manchester United gegn Crystal Palace að Casemiro ætti að yfirgefa toppfótboltann og fara annað hvort til MLS-deildarinnar eða Sádi-Arabíu.

„Fótboltinn hefur yfirgefið hann,“ sagði Carragher á sínum tíma og bætti við að Casemiro ætti að hætta áður en hann yrði gerður að athlægi.

Í viðtali á YouTube-rás Rio Ferdinand sagði Casemiro að hann virti skoðanir Carragher en að orðalagið hefði farið yfir strikið.

„Ég virði hans skoðun, en mér líkaði þetta ekki því þetta var óvirðing gagnvart mér,“ sagði Brasilíumaðurinn.

Casemiro benti jafnframt á að hann hefði átt gott tímabil með United og lagt sitt af mörkum með níu mörkum úr miðjunni.

Hann gaf þó sterklega í skyn að sumarið væri rétti tíminn til að yfirgefa félagið. Casemiro sagði að fólk myndi sakna sín líkt og gerðist þegar hann yfirgaf Real Madrid árið 2022.

„Lífið breytist og stundum er best að fara á réttum tíma,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið
433Sport
Í gær

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick
433Sport
Fyrir 2 dögum

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku