fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
EyjanNeytendur

Bónus ódýrasta verslunin – Fjarðarkaup næst oftast með lægsta verðið

Eyjan
Föstudaginn 12. maí 2023 15:07

Samkvæmt könnun ASÍ er Bónus ódýrasta verslunin og Krónan kemur þar á eftir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bónus var ódýrasta verslunin í matvörukönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi þann 9. maí. Verðið í Bónus var að meðaltali 4 prósentum frá lægsta verði, og bauð verslunin upp á lægsta verðið í 76 tilfellum. Krónan var með næst lægsta meðalverðið sem var 10 prósentum frá lægsta verði. Fjarðarkaup var næst oftast með lægsta verðið á eftir Bónus, í 29 tilvikum. Meðalverð í Fjarðarkaup var 16 prósentum frá lægsta verði, einu prósentustigi hærra en meðalverð í Nettó.

Oft einnar krónu verðmunur á Bónus og Krónunni

Á grafinu hér að neðan má sjá hve langt vöruverð verslana var að meðaltali frá lægsta verði. Ef einhver verslun hefði verið með lægsta verð á öllum vörum hefði hún fengið gildið 0 prósent en 100 prósent ef verðið væri tvöfalt hærra að meðaltali.


Af 127 vörum sem voru í könnuninni voru 99 til í bæði Bónus og Krónunni. Þar af voru 58 vörur einni krónu dýrari í Krónunni en Bónus. Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland og næst oftast í Heimkaupum.

Minnstur verðmunur á te og kaffi og á mjólkurvöru

Innan vöruflokka var minnstur munur á hæsta og lægsta verði á te og kaffi, að meðaltali 23 prósent, og mjólkurvörum, að meðaltali 27 prósent.
Mestur var munurinn í flokki ávaxta og grænmetis, að meðaltali 105 prósent, en þar er miðað við kílóverð á flestum vörum. Til dæmis var aðeins 13 prósenta munur á lægsta og hæsta verði á hálfum lítra af rjóma, á meðan 84 prósenta munur var á lægsta og hæsta kílóverði á papriku.
Mikill verðmunur á vörum með sama vörumerki

Í mörgum tilfellum var mikill verðmunur á dósamat og þurrvöru, sælgæti og snakki og á ýmissi frosinni vöru, sem er athyglisvert í ljósi þess að um nákvæmlega sömu vörur er að ræða. Sem dæmi má nefna 67 prósenta verðmun á hæsta og lægsta verði á Mutti niðursoðnum tómötum, 56 prósenta verðmun á Ora túnfiski í olíu og 70 prósenta verðmun á 2 lítra vanillu Mjúkís frá Kjörís.

Verð á dósamat og þurrvöru var oftast lægst hjá Bónus, í 8 tilfellum, og í Fjarðarkaupum, í 7 tilfellum. Iceland átti oftast hæsta verðið á sælgæti og snakki en Fjarðarkaup oftast lægsta verðið.

108 prósenta munur á Kjarna jarðaberjagraut

Af öðrum athyglisverðum verðmuni í könnuninni má nefna:

• 108 prósenta mun á hæsta og lægsta verði á einum lítra af Kjarna Jarðaberjagraut. Lægst var verðið í Fjarðarkaup, 398 kr. en hæst í Heimkaupum, 829 kr.
• 101 prósenta mun á hæsta og lægsta verði á Stjörnu Partý paprikusnakki sem var dýrast í Iceland, 699 kr. en ódýrast í Fjarðarkaupum, 348kr.
• 329 prósenta mun á hæsta og lægsta kílóverði á hvítlauk. Hæst var verðið 3.369 krónur í Kjörbúðinni, Sandgerði, en lægst 729 krónur í Bónus.
• 91 prósenta mun á rúlluverði klósettpappírs. Hæst var verðið í Kjörbúðinni, Sandgerði, 143 krónur, en lægst 75 krónur í Nettó.

Um könnunina

Ýmsar aðferðir eru til að varpa ljósi á niðurstöður í verðkönnunum með mörgum vörum og verslunum. Til að skýra betur verð hjá þeim verslunum sem eru hvorki oft með hæsta né lægsta verðið í verðkönnun og finna út meðalverð má reikna út hlutfallslegt frávik frá lægsta verði hverrar vöru. Þannig raðast verslanirnar eftir því hversu langt verð á vörum í könnuninni er að meðaltali frá lægsta verði.

Í könnuninni var hilluverð á 127 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd í eftirtöldum verslunum: Nettó Mjódd, Bónus Hraunbæ, Krónunni Selfossi, Fjarðarkaupum, Iceland Engihjalla, Hagkaup Skeifunni, Kjörbúðinni Sandgerði og á Heimkaup.is. Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
22.03.2020

Þetta er réttur neytenda í heimsfaraldri COVID-19

Þetta er réttur neytenda í heimsfaraldri COVID-19
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
Neytendur
26.01.2020

Þetta áttu ekki að gera í atvinnuviðtali

Þetta áttu ekki að gera í atvinnuviðtali
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
20.06.2019

Hefur þú tekið smálán? – Framkvæmdu þessi 3 skref til að vernda hagsmuni þína

Hefur þú tekið smálán? – Framkvæmdu þessi 3 skref til að vernda hagsmuni þína
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“
EyjanNeytendur
19.04.2019

Umfelgunarkostnaður getur numið tugum þúsunda

Umfelgunarkostnaður getur numið tugum þúsunda