fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Þjóðkirkjan tapaði 654 milljónum á síðasta ári

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 19. mars 2021 09:00

Agnes Sigurðardóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðkirkjan var rekin með 654 milljóna króna tapi á síðasta ári. Ástæðan er fyrst og fremst vegna einskiptis fjárhagsaðgerða í efnahagsreikningi.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og segir að þetta komi fram í skriflegu svari Þjóðkirkjunnar við fyrirspurn blaðsins. Í svarinu segir að viðamikil endurskipulagning á rekstri kirkjunnar sé ein helsta ástæða niðurstöðu ársreikningsins en ársreikningurinn var samþykktur af Kirkjuráði 12. mars síðastliðinn. Fram kemur að sala á eignum, sem voru of hátt bókfærðar, hafi myndað sölutap sem sé einnig meginástæða stöðunnar.

Hrein eign Þjóðkirkjunnar var um 4,2 milljarðar í árslok 2020. Hallareksturinn á síðasta ári mun ekki hafa áhrif á þá þjónustu sem kirkjan veitir en ljóst er að draga verður úr rekstrarkostnaði. Áætlað er að jafnvægi náist 2023.

Á síðasta ári hækkuðu laun presta og annarra starfsmanna Þjóðkirkjunnar um 6,5% og telur kirkjan að hana vanti á annað hundrað milljónir frá ríkinu vegna þessara hækkana og að líklega vanti einnig fjármagn vegna hækkana á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Hvað segja Bretar nú um Brexit?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu