Nú hafa verið talin 5972 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og aftur hefur staðan breyst. Nú hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra aftur tekið forystuna og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er dottin niður úr 8. sæti og Friðjón R. Friðjónsson almannatengill kominn í hennar stað. Hann sóttist eftir fjórða sæti en hlýtur að telja ánægjulegt að vera kominn á top 8 listann. Brynjar Níelsson er áfram í sjötta sæti, en hann var í því fjórða þegar fyrstu tölur birtust. Sætið sem hann sóttist eftir var 2. sætið.
Um 7500 greiddu atkvæði í dag og því ekki mikið af atkvæðum eftir og næstu tölur sem birtast verða lokatölur.
Staðan á listanum er eftirfarandi :