„Er ég einn um að finnast sorglegt að hlusta á ákveðin öfl í okkar samfélagi tala niður Búsáhaldabyltinguna og setja hana í samhengi við annars hræðilega skotárás á bíl Borgarstjóra og fleiri ódæðisverk?“
Svona hefst pistill sem Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, birti á Facebook-síðu sinni í dag. Hann sakar þar ákveðna aðila sem hann nafngreinir ekki um að vinna gegn málefnalegri gagnrýni á stjórnmál, sérhagsmunaöfl og aðra.
„Erum við ekki farin að rugla saman þeim tug þúsundum sem lögðu leið sína niður á Austurvöll með friðsömum hætti, með potta og pönnur, sleifar og könnur til að mótmæla gengdarlausri spillingu í íslensku samfélagi? Spillingu sem samkvæmt alþjóðlegum mælingum hefur ekki tekist að uppræta, nema að mjög litlu leiti ef þá nokkuð,“ skrifar Ragnar og skýtur svo á stjórnmálamenn.
„Erum við virkilega komin á þann stað að bera saman siðrof þings og þjóðar þar sem dæmdir glæpamenn rændu samfélagið innan frá og tóku með sér heila stjórnmálastétt sem var á styrktarspenum þeirra? Stjórnmálamenn sem þáðu tugmilljónir í styrki frá fyrirtækjum sem settu heilt samfélag á hliðina með glæpum sínum og endaði með skelfilegum afleiðingum?“
Ragnar segir að auðvitað megi rifja upp og ræða hlutina en það þurfi að gera það með sanngjörnum og upplýstum hætti. Hann endar pistilinn á að spyrja hvort Búsáhaldabyltingin sé ástæðan fyrir öllu ofbeldi í samfélaginu.
„Ísland er svo frábært land en hér ríkir kerfi, spillt kerfi, kerfi sem sundrar fólki og stéttum. Kerfi sem sífellt reynir að endurskrifa söguna. Samfélagið væri líklega fullkomlega laust við allt ofbeldi og hatursfulla orðræðu ef ekki hefði verið fyrir helvítis Búsáhaldabyltinguna! Það verður fróðlegt að sjá hverju henni verður kennt um næst?“
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=10226035224971266&id=1355629278