fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Sigurður segir notendur einkabílsins misskilja rosalega – „Eitt af því sem virðist pirra suma einkabílanotendur“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 11. nóvember 2020 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, skrifaði pistil sem birtist á Vísi í dag undir yfirskriftinni  „Risastóri misskilningurinn“. Í pistlinum fjallar Sigurður um misskilning hjá notendum einkabílsins. „Þegar ráfað er í gegnum fjöl- og samfélagsmiðla má oft finna talsverða neikvæðni hjá einkabílanotendum í garð breyttra ferðavenja í formi hjólreiða. Margir hafa meira að segja gagnrýnt kostnað sem sveitarfélög leggja í við uppbyggingu á hjólreiðastígum,“ segir Sigurður og bætir við að þetta sé afar áhugavert í ljósi staðreynda sem hann kemur því næst með.

Breyttar ferðavenjur skapa meira rými fyrir þá sem kjósa einkabílinn

Sigurður segir að það sé staðreynd að breyttar ferðavenjur skapi meira rími fyrir notendur einkabílsins. „Eitt af því sem virðist pirra suma einkabílanotendur hvað mest eru umferðateppur. Málið er einfalt, því fleiri ferðir sem farnar eru með hjóli, því færri verða bílferðirnar. Einföld eðlisfræði segir okkur að ferðir í einkabíl eru mun plássfrekari en aðrar ferðvenjur. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar skapa meira bílapláss,“ segir hann.

Breyttar ferðavenjur geta lækkað eldsneytiskostnað einkabílsins

Önnur staðreyndin sem Sigurður nefnir er að breyttar ferðavenjur geti lækkað eldsneytiskostnað einkabílsins. „Það kostar ekki bara dýrmætan gjaldeyri að kaupa olíu á bíla heldur kostar líka enn meiri gjaldeyri að kaupa bílana sjálfa, dekkin og varahlutina. Ef fleiri kjósa breyttar ferðavenjur þá dregur verulega úr gjaldeyrisútflæði sem styrkir venjulega krónuna, sem aftur skilar meiri kaupmætti fyrir alla og lækkun á olíuverði innanlands. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar auka kaupmátt og lækka olíukostnað einkabílsins,“ segir hann.

Breyttar ferðavenjur geta lækkað kostnað vegna losunar gróðurhúsaloftegunda

Næsta staðreynd sem Sigurður nefnir er sú að ef ferðavenjum er breytt getur kostnaður vegna losunar gróðurhúsategunda lækkað. „Vegasamgöngur eru stærsti losunarþáttur gróðurhúsaloftegunda sem eru á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Ef ekki tekst að ná loftslagsmarkmiðum Íslands blasa við sektargreiðslur sem geta orðið verulega háar,“ segir Sigurður.

„Sá kostnaður mun lenda á ríkinu sem eru við sjálf, þannig að reikningurinn lendir líka hjá okkur sem notum einkabíla. Ef fleiri kjósa breyttar ferðavenjur aukast líkurnar á að markmiðin náist og að sektargreiðslurnar verði minni. Niðurstaðan er því einföld, færri bílakílómetrar lækka kolefniskostnað þjóðarinnar þ.á.m. eigenda einkabíla.“

Breyttar ferðavenjur geta lækkað kostnað heilbrigðiskerfisins

Þriðja staðreyndin sem Sigurður kemur með er sú að með breyttum ferðavenjum geti kostnaður heilbrigðiskerfisins verið lækkaður. „Samkvæmt fjármálaráðuneytinu eru útgjöld til heilbrigðismála 753 þúsund kr. á hvern íbúa landsins. Við einkabílaeigendur, og aðrir skattgreiðendur borgum auðvitað þann reikning,“ segir hann.

„Samkvæmt nýlegri samantekt í Danmörku eru heilsufarsáhrif hjólreiða svo jákvæð, að sparnaður í heilbrigðiskostnaði hefur verið metin á 8 danskar krónur á hvern hjólakílómetra. Þetta þýðir að fyrir hvern kílómetra sem við fáum fólk til að ferðast með hjóli eða rafhjóli gætu 170 kr. sparast á endanum í heilbrigðisútgjöld. Það lækkar framtíðarkostnað allra skattgreiðenda, líka hjá eigendum einkabíla.“

Allir græða

Að lokum segir Sigurður að allir græði á því að ferðavenjum sé breytt. „Þó að fólk velji að breyta ekki um ferðvenjur og halda sig eingöngu við einkabílinn þá er alveg skýrt að allir græða á auknum hjólreiðum. Rafhjól hafa opnað á viðtækari nýtingu hjólreiða þar sem brekkur og mótvindur verða minna vandamál. Ríkið hef stigið risastórt skref í stuðningi við hjólreiðar með niðurfellingu á virðisaukaskatti, enda bæta jákvæð umhverfis- og efnahagsáhrif það skatttekjutap margfalt. Ljóst er að allir græða með einhverjum hætti á auknum hjólreiðum, líka þeir sem kjósa að nýta sér aldrei þennan frábæra ferðamáta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“