Í dag sæmdi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn. Þau 14 sem hljóta orðuna að þessu sinni eru:
- Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og útflutnings á sviði hátækni og nýsköpunar.
- Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar.
- Gestur Pálsson barnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðis barna.
- Guðni Kjartansson fyrrverandi íþróttakennari og þjálfari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og skóla.
- Guðrún Hildur Bjarnadóttir ljósmóðir, Þórshöfn, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
- Guðríður Helgadóttir forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeilda Landbúnaðarháskóla Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar garðyrkju og miðlun þekkingar.
- Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor við Háskóla Íslands, Garðabæ, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði upplýsingafræði og skjalastjórnunar.
- Margrét Bjarnadóttir fyrrverandi formaður fimleikafélagsins Gerplu og Fimleikasambands Íslands, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íþrótta og æskulýðsmála.
- Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leikritunar og bókmennta.
- Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi, Mývatnssveit, riddarakross fyrir framlag til ferðaþjónustu og atvinnulífs í heimabyggð.
- Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar dýra, og störf á vettvangi dýralækninga og sjúkdómavarna.
- Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Reykjavík, riddarakross fyrir atbeina undir merkjum samtakanna Indefence og framlag til íslensks atvinnulífs.
- Sigurður Reynir Gíslason rannsóknaprófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslenskra jarðvísinda og kolefnisbindingar.
- Valgerður Stefánsdóttir fyrrverandi forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks táknmáls og jafnréttisbaráttu döff fólk.