fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

MDE skoðar vinnubrögð Rannsóknarnefndar Alþingis – „Málsmeðferðin jafngilti refsingu“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 7. október 2019 09:00

Ólafur Ólafsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur kallað eftir svörum frá íslenskum stjórnvöldum í tengslum við  málsmeðferð Rannsóknarnefndar Alþingis (RNA) við rannsókn og gerð skýrslu um þátttöku þýska einkabankans Hauck & Aufhäuser í einkavæðingu Búnaðarbankans 2003, þegar íslenska ríkið seldi 45,8% hlut sinn í bankanum.

Ólafur Ólafsson beindi kæru til Mannréttindadómstólsins um miðjan júlí 2017. Í kæru Ólafs eru færð rök fyrir því að hann hafi ekki notið réttinda sem honum áttu að vera tryggð með vísan í 6., 8. og 13. grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Dómstóllinn hefur nú með bréfi til málsaðila dagsettu 2. september síðastliðinn ákveðið að taka málið til frekari meðferðar.

Í kæru sinni bendir Ólafur á að umgjörð og málsmeðferð RNA hafi í raun falið í sér sakamál á hendur honum og jafngilt refsingu án þess að hann hafi notið nokkurra þeirra réttinda sem fólk sem borið er sökum á að njóta og er grundvöllur réttarríkisins.

Ólafur segir í tilkynningu að alvarlega hafi verið vegið að orðspori hans með ásökunum sem ekki væru réttlætanlegar:

„Vinna og birting á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vó alvarlega að orðspori mínu og æru án þess að ég hefði nokkurt tækifæri til að koma við vörnum eða nýta þau réttindi sem við teljum sjálfsagt að fólk, sem borið er þungum sökum af hálfu stjórnvalda, njóti. Þótt skýrslan hafi verið skrifuð undir því yfirskyni að varpa ljósi á 15 ára gamalt mál fólust í henni alvarlegar og einhliða ásakanir á mig sem í engu eru réttlætanlegar. Þessi málsmeðferð jafngildir í raun refsingu án dóms og laga og gengur þvert á rétt hvers og eins til að teljast saklaus uns sekt er sönnuð. Það felst ákveðin viðurkenning á þessum sjónarmiðum í því að Mannréttindadómstóllinn taki málið upp og krefji ríkið svara um málsmeðferðina. Í þessari einhliða árás á mig var ekkert tillit tekið til þess að ríkið tók á sínum tíma hæsta tilboði í opnu söluferli, kaupverðið var greitt að fullu og engum blekkingum var beitt, enda var tilboð S-hópsins metið hagstæðast jafnvel án aðkomu erlends banka líkt og lesa má í fundargerðum Framkvæmdanefndar um einkavæðingu,“

segir Ólafur.

Spurt um réttarvernd

Í tilkynningur segir að spurningarnar sem Mannréttindadómstóll Evrópu sendi stjórnvöldum lúti að því hvort líta beri á rannsókn RNA sem sakamálarannsókn og sé svo, hvort Ólafur hafi þá notið viðeigandi réttarverndar og hafi mögulega verið gert að svara spurningum án þess að gætt hafi verið að rétti hans til að svara ekki spurningum eða fella ekki á sig sakir. Þá er spurt hvort gætt hafi verið að þeirri meginreglu að menn skuli teljast saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. Eins er spurt hvort réttur Ólafs til friðhelgi einkalífs hafi verið skertur í skilningi 8. greinar sáttmálans og hvort honum hafi staðið til boða fullnægjandi innlend úrræði þar sem hann hefði getað leitað réttar síns samkvæmt 13. grein. Snerta spurningar dómstólsins því ekki einungis málsmeðferð stjórnvalda samkvæmt 6. grein heldur einnig 8. og 13. grein.

Þá er íslenska ríkinu boðið að leggja fram enska þýðingu á niðurstöðum RNA, endurrit á ensku á ummælum fulltrúa RNA sem varða Ólaf og voru viðhöfð í sjónvarpi og á blaðamannafundi sem haldinn var til kynningar á niðurstöðunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli