

Búið er að mynda nýjan meirihluta í Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir hafa komist að samkomulagi, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm menn kjörna og Framsókn einn.
Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður bæjarstjóri. Ágúst Bjarni Garðarsson, oddviti Framsóknar verður formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen, Sjálfstæðisflokki, forseti bæjarstjórnar.
Málefnasamningur verður kláraður á næstu dögum og kynntur eftir helgi, en þar munu málefni fjölskyldunnar, eldri borgara og skilvirk þjónusta í þágu íbúa og fyrirtækja vera í fyrirrúmi.