

Íslenskur karlmaður fannst látinn í Stryneelva í Jostadalsbreen þjóðgarði á föstudag. Í frétt norska miðilsins VG kemur fram að maðurinn hét Rögnvaldur Þór Gunnarsson, 32 ára gamall, sem fæddur var á Íslandi en búsettur í Stryn.

Ekki er talið að andlát Rögnvaldar hafi borið að með saknæmum hætti, en viðbragðsaðilar höfðu leitað hans í tvo daga. Greint er frá nafni Rögnvaldar í samráði við aðstandendur hans, og þakkar fjölskylda hans viðbragðsaðilum fyrir aðstoðina.