fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Eyjan

Aldrei þessu vant varð Inga kjaftstopp

Eyjan
Miðvikudaginn 22. nóvember 2023 10:26

Inga Sæland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland þingmaður og formaður Flokks fólksins segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún sé aldrei þessu vant kjaftstopp yfir þeirri þróun að algengara er orðið að fyrirtæki hér á landi neiti að taka við greiðslum, fyrir vörur og þjónustu, í reiðufé. Inga segist telja að um lögbrot sé að ræða og muni skoða hvort svo sé. Færsla Ingu er eftirfarandi:

„Nú eru landsmenn þvingaðir til að nota einungis kort? Man ekki betur en einhver hefði verið gerður burtreka úr pólitík þegar hann stakk einmitt upp á því að koma öllum viðskiptum í gegnum kortafyrirtæki. En sem sagt nú er ekki hægt að greiða ýmsa þjónustu með peningum lengur. Held reyndar að þar sé um lögbrot að ræða og ætla að skoða það ofan í kjölinn. Íslenska krónan er eitthvað sem við hengjum okkur í þannig að það er svolítið undarlegt að ekki megi nota hana í viðskiptum á einhverjum stöðum. Hvað finnst ykkur t.d um það? Ef við tækjum út launin okkar í peningum um hver mánaðarmót myndum við þá vera gerð burtreka úr einhverjum verslunum af því að við vildum ekki nota kort? Þetta er orðið svo galið að ég er kjaftstopp og gerist það nú ekki oft.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit