fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Haraldur biðst afsökunar og hættir við fyrirætlan um gestaþjóna

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 23. október 2023 18:53

Haraldur Þorleifsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haraldur Þor­leifs­son, athafnamaður og eig­andi veitinga­hússins Önnu Jónu í Tryggvagötu , er hættur við fyrirætlan sína um að fá þjóð­þekkta ein­stak­linga til að hlaupa í skarðið fyrir kven­kyns þjóna á morgun, þegar kvennaverkfall er. 

Í tilkynningu á X greinir Haraldur frá þessu og biðst afsökunar. Fyrirætlan Haraldar vakti athygli og gagnrýni, en til stóð að Ari Eldjárn, Sigurður Guðmundsson, Unnsteinn Manuel, Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar, Haraldur Þorleifsson Jón Ólafsson, Einar Örn, Gunnar Hansson, Jón Gnarr, Högni Egilsson og fleiri myndu standa þjónavaktina á morgun. 

Á meðal þeirra sem gagnrýndu viðburðinn eru Sól­ey Tómas­dóttir sem gagnrýndi viðburðinn sem og Harald sjálfan. Sagði hún að um bak­slag sé að ræða í baráttunni þar sem vel meinandi karlar sem langi til að láta leggja sitt af mörkum standist ekki freistinguna til að láta kvenna­verk­fallið snúast um sig.

Segir Haraldur að hann hafi viljað búa til stað þar sem konur gætu verið saman. „Konur, þeirra upplifun, þeirra samstaða og þeirra verkfall er og á að vera aðalatriðið á þessum degi. — Á morgun verða mikið af konum í bænum. Sem eigandi veitingastaðar í miðbænum, sem er fyrst og fremst búinn til fyrir konur, þá vildi ég búa til stað þar sem þær getu verið saman.“

Segir hann að með þessu hafi hann gert það sem karlar gera oft, að reyna að vera með í stað þess að gefa konum plássið. 

„Ég hef í dag talað við mörg og heyrt að mörgum fannst það vera mjög óviðeigandi að karlar eins og ég fengju mikla athygli á degi sem á að snúast um mismunun og ofbeldi gegn konum. Ég er algjörlega sammála því. — Minn reynsluheimur, og reynsluheimur karla, er allt annar en kvenna. Þegar mér var í dag sagt af konum sem ég ber ómælda virðingu fyrir, að ég sé ekki að hjálpa, heldur þvert á móti, þá sá ég það sem ég átti að sjálfsögðu að sjá fyrr,“ segir Haraldur.

„Mér þykir mjög leitt að þessi viðburður á morgun á Önnu Jónu hafi dregið athygli frá því sem skiptir raunverulega máli á þessum degi. Við verðum með opið á morgun og munum gera okkar besta við að þjóna þeim konum og kvárum sem koma til okkar en gestaþjónarnir verða hinsvegar ekki með okkur. 

Það er ekki hlutverk kvenna að kenna körlum eins og mér hvernig á að haga sér. En ég er samt sem áður ótrúlega þakklátur þeim sem hafa í dag talað hreinskilið um þetta mál. Ég býst við því að einhver munu hrósa mér fyrir að sjá að mér. Það væri algjörlega rangur útgangspunktur og myndi aftur setja athyglina á rangan stað. Þau sem eiga allt hrós skilið eru þær konur og kvár sem hafa vakið mig, og okkur öll, til enn frekari vitundar um þessi risastóru og mikilvægu mál.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa