
Mark Harry Kane á lokamínútunum fyrir Bayern Munchen gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni gæti reynst afar mikilvægt fyrir þýska boltann, þrátt fyrir að Bayern hafi fallið úr leik.
Jöfnunarmark Kane í 1-1 jafntefli liðanna skilaði Þýskalandi mikilvægum stigum á styrkleikalista UEFA í baráttunni við Spán um aukasæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
UEFA veitir tvö aukasæti út frá árangri landa í Evrópukeppnum og enska úrvalsdeildin hefur þegar tryggt sér annað þeirra.
Þýskaland er aðeins 0,424 stigum á eftir Spáni og mark Kane gæti því reynst dýrmætt ef úrslit falla Þjóðverjum í hag í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld.