fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Formaðurinn ræðir uppsögn Helga Sig í dag – „Þetta samstarf varð til þess að við verðum vinir alla ævi“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 31. júlí 2023 12:46

Mynd: Skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Sigurðsson hefur látið af störfum sem þjálfari Grindavíkur. Formaður félagsins er þakklátur Helga fyrir samstarfið og segir hann sjálfan hafa átt frumkvæðið að starfslokum sínum.

Margir spáðu Grindvíkingum toppsætinu í Lengjudeild karla fyrir tímabil en gengið hefur verið arfaslakt. Eftir fína byrjun á tímabilinu er liðið nú í tíunda sæti, 4 stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Helgi tók við Grindavík fyrir tímabil en fyrr í dag sagði Fótbolti.net frá því að hann væri á útleið. Haukur Guðberg Einarsson formaður staðfesti tíðindin svo við 433.is fyrir skömmu.

„Við áttum gott og farsælt samstarf þó stutt hafi verið og hann er algjör toppmaður og toppþjálfari,“ segir Haukur við 433.is, en uppsögnin var að frumkvæði Helga.

Haukur er afar þakklátur fyrir samstarfið með Helga.

„Þetta samstarf varð til þess að við verðum vinir alla ævi. Okkur þykir þetta sárt.“

Nú hefst vinna hjá Grindavík að leita að eftirmanni Helga.

„Við erum í bullandi vinnu. Þetta gerðist hratt og stjórnin er að vinna hörðum höndum að því að finna eftirmann hans þessa stundina.“

Verði nýr þjálfari ekki fundinn fyrir næsta leik gegn gegn Vestra á miðvikudag verður Milan Stefán Jankovic aðalþjálfari í þeim leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svipbrigði moldríka mannsins vekja mikla athygli: Hefur tapað mörgum milljörðum á stuttum tíma – Sjáðu myndirnar

Svipbrigði moldríka mannsins vekja mikla athygli: Hefur tapað mörgum milljörðum á stuttum tíma – Sjáðu myndirnar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ekki tapað á útivelli tvö tímabil í röð

Ekki tapað á útivelli tvö tímabil í röð
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Launahæstu mennirnir á Englandi komast ekki nálægt þeim ríkustu

Launahæstu mennirnir á Englandi komast ekki nálægt þeim ríkustu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Máni spyr hver stefnan sé í Garðabænum – „Menn vita ekkert á hvaða vegferð þeir eru og hafa ekki vitað í lengri tíma“

Máni spyr hver stefnan sé í Garðabænum – „Menn vita ekkert á hvaða vegferð þeir eru og hafa ekki vitað í lengri tíma“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ummæli Slot koma mörgum á óvart – ,,,Þá get ég leyft honum að spila“

Ummæli Slot koma mörgum á óvart – ,,,Þá get ég leyft honum að spila“
433Sport
Í gær

Biðja fólk um að virða einkalíf hans eftir mikið áreiti: Mynd af syninum gerði marga reiða – Tveir myrtir í borginni fyrir 25 árum

Biðja fólk um að virða einkalíf hans eftir mikið áreiti: Mynd af syninum gerði marga reiða – Tveir myrtir í borginni fyrir 25 árum
433Sport
Í gær

Salah opnar sig um hvað átti sér stað – ,,Ég er ekki að ráðast á Liverpool en veit hvernig þeir hafa komið fram við leikmenn“

Salah opnar sig um hvað átti sér stað – ,,Ég er ekki að ráðast á Liverpool en veit hvernig þeir hafa komið fram við leikmenn“